Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 10. febrúar 2021 22:42
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið: Þriðja stoðsending Gylfa gullfalleg - Staðan 5-4
Mynd: Getty Images
Gífurlega fjörug viðureign er í gangi á Goodison Park þar sem Everton og Tottenham eru að kljást um sæti í 8-liða úrslitum enska bikarsins.

Leikurinn er í framlengingu þar sem staðan var 4-4 eftir venjulegan leiktíma og er Gylfi Þór Sigurðsson búinn að eiga stórleik.

Gylfi Þór lagði tvö mörk upp og skoraði eitt í venjulegum leiktíma og var hann að bæta stoðsendingu við sig í framlengingunni.

Bernard skoraði laglegt mark eftir frábæra sendingu frá Gylfa, sem tók góðan snúning áður en hann lyfti knettinum yfir vörnina með vinstri.

Staðan er 5-4 þegar átta mínútur eru eftir af framlengingunni.

Sjáðu markið.
Athugasemdir
banner
banner