Fotbolti.net
10.09.26 - 23:03
Brynjar Ingi Erluson

4. deild: Álafoss bjargaði sér á ótrúlegu kvöldi - 32 mörk í þremur leikjum

Álafoss verður áfram í 4. deild

Álafoss verður áfram í 4. deild

Canon

Mynd: Hanna Sím

Álafoss bjargaði sér frá falli úr 4. deild karla eftir hreint ótrúlegt kvöld í deildinni.
Stórkostlegt sumar hjá Álftanesi - „Það vantar ekki hamingjuna"
TENGT EFNI

Stórkostlegt sumar hjá Álftanesi - „Það vantar ekki hamingjuna"

Mosfellingar vissu fyrir leikinn að þeir þyrftu að vinna botnlið Hafna og treysta á að ÍH tapaði gegn Vængjum Júpiters til að halda sér uppi.

Álafoss gerði sitt með sannfærandi 6-2 sigri á Höfnum þar sem Daníel Ingi Jónsson skoraði þrennu. Arnór Gauti Ragnarsson, Heiðmar Trausti Elvarsson og Arnar Logi Ásbjörnsson skoruðu einnig fyrir heimamenn.

Á sama tíma tapaði ÍH 6-5 gegn Vængjunum í ótrúlegum markaleik í Grafarvogi. Heimamenn leiddu 4-3 í hálfleik og voru komnir í 6-3 þegar rúmur stundarfjórðungur var liðinn af þeim síðari, svo sigurinn virtist nánast í höfn.

ÍH neitaði þó að gefast upp og skoraði tvö mörk á sex mínútum, þannig að aðeins eitt mark skildi liðin að þegar tuttugu mínútur voru eftir. Hafnfirðingar fundu hins vegar ekki sjötta markið sem hefði getað bjargað þeim frá falli og fara því niður með Höfnum. Grátleg niðurstaða fyrir ÍH en Mosfellingar gátu fagnað.

Álftanes, sem hafði þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn, vann Elliða 9-4 þar sem Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson gerði sér lítið fyrir og skoraði fimm mörk.

Hann lauk því tímabilinu með 17 mörk og er næstmarkahæstur ásamt Brynjólfi Þór Eyþórssyni og Rodrigo Depetris. Yfirburðir Álftaness voru miklir en liðið vann 17 af 18 leikjum sínum og skoraði 89 mörk.

Álafoss 6 - 2 Hafnir
0-1 Ottó Helgason ('10 )
1-1 Daníel Ingi Jónsson ('25 )
2-1 Arnór Gauti Ragnarsson ('50 )
3-1 Daníel Ingi Jónsson ('51 )
4-1 Heiðmar Trausti Elvarsson ('58 )
5-1 Arnar Logi Ásbjörnsson ('65 )
6-1 Daníel Ingi Jónsson ('83 )
6-2 Jón Kristján Harðarson ('87 )

Vængir Júpiters 6 - 5 ÍH
1-0 Arnar Ragnars Guðjohnsen ('2 )
2-0 Darri Már Garðarsson ('4 )
3-0 Hákon Gunnarsson ('17 , sjálfsmark)
3-1 Jón Helgi Pálmason ('19 )
3-2 Elmar Rútsson ('26 )
4-2 Brynjar Lár Bjarnason ('45 )
4-3 Elmar Rútsson ('45 )
5-3 Óskar Dagur Jónasson ('45 )
6-3 Darri Már Garðarsson ('61 )
6-4 Elmar Rútsson ('64 )
6-5 Mikael Kristinn Rúnarsson ('70 )

Álftanes 9 - 4 Elliði
1-0 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('2 )
2-0 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('4 )
3-0 Bessi Thor Jónsson ('6 )
3-1 Tómas Breki Steingrímsson ('17 )
4-1 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('19 )
5-1 Stefán Smári Halldórsson ('28 )
6-1 Unnar Ari Hansson
6-2 Pétur Óskarsson ('40 )
7-2 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('42 )
7-3 Emil Ásgeir Emilsson ('50 )
7-4 Viktor Máni Róbertsson ('58 )
8-4 Sveinn Sær Vattnes Ingólfsson ('67 )
9-4 Andri Janusson ('85 )
Sveinn Sær setti fimmu fyrir Álftanes

Sveinn Sær setti fimmu fyrir Álftanes

Canon

Mynd: Álftanes/Instagram

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Álftanes18+6851
2Hamar17+5144
3Árborg17+3033
4Vængir Júpiters18-625
5Elliði18-823
6KFR17-1418
7Úlfarnir17-1216
8Álafoss18-2314
9ÍH18-3714
10Hafnir18-4910
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.