Fotbolti.net
10.09.26 - 21:27
Brynjar Ingi Erluson

„Fullkomið fyrir alla“

„Fullkomið fyrir alla“
Canon

Mynd: EPA

Benjamin Sesko, einn af markaskorurum Manchester United í kvöld, segir kvöldið hafa verið fullkomið.
Meistaradeildin: Afar þægilegt hjá Man Utd - Musiala skoraði eftir erfiðar vikur
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Afar þægilegt hjá Man Utd - Musiala skoraði eftir erfiðar vikur

Sesko skoraði þriðja mark United þegar hann fór framhjá markverðinum og renndi boltanum í netið. United-menn skiluðu fagmannlegri frammistöðu og fögnuðu öruggum 4-0 sigri á Sabah frá Aserbaísjan.

„Mér fannst þetta fullkomið fyrir alla, sérstaklega stuðningsmennina. Þetta skiptir þá miklu máli, ekki síst þegar þeir fá að sjá svona mörg mörk. Þetta var líka frábært fyrir okkur því það gefur okkur aukna hvatningu fyrir næstu leiki.“

„Það er mikilvægt fyrir alla að skora. Ég vona að við fáum marga svona leiki,“
sagði Sesko.

Hann segir þetta gera fullt fyrir sjálfstraust leikmanna fyrir nágrannaslaginn gegn Manchester City um helgina.

„Klárlega. Þetta gerir mikið fyrir sjálfstraustið og nú er mikilvægt að ná góðri endurheimt og einbeita okkur að nágrannaslagnum,“ sagði Sesko.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.