Staðan er 3-2 í hálfleik í hörkuleik á milli Everton og Tottenham í enska bikarnum.
Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið í lykilhlutverki og er bæði búinn að skora og leggja upp í leiknum.
Davinson Sanchez kom Tottenham yfir snemma leiks en Dominic Calvert-Lewin jafnaði eftir stoðsendingu frá Gylfa Þóri.
Richarlison kom Everton yfir og bætti Gylfi þriðja markinu við úr vítaspyrnu en hann sjálfur átti þátt í að vinna spyrnuna. Gylfi var svellkaldur á punktinum og sendi Hugo Lloris í rangt horn.
Erik Lamela minnkaði svo muninn fyrir Tottenham skömmu fyrir leikhlé.
Sjáðu stoðsendingu Gylfa
Sjáðu vítaspyrnu Gylfa
Athugasemdir