„Jonny Evans var magnaður og enn eitt hreina lakið hjá okkur," sagði Brendan Rodgers með bros á vör eftir 4-0 sigur Leicester City á Aston Villa í gær.
Harvey Barnes og Jamie Vardy skoruðu báðir tvö mörk í þægilegum sigri á Villa en Rodgers var afar ánægður með framlag leikmanna sinna og þá sérstaklega Jonny Evans en hann var klettur í vörn heimamanna.
„Við vildum vinna og ég held að það hafi sést hversu lítið sjálfstraustið var hjá okkur í byrjun en eina leiðin til að byggja það er að leggja sig fram og það er nákvæmlega það sem leikmennirnir gerðu," sagði Rodgers.
„Barnes á bjarta framtíð. Hann er að verða betri og betri, er með ákefðina og hungrið til þess að koma sér inn í teig og skora. Ég er ánægður með hann og Vardy sem náðu báðir í tvö mörk," sagði hann í lokin.
Athugasemdir