Í kvöld fara 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar af stað með fjórum áhugaverðum leikjum.
Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.
Meistaraspáin er skemmtileg keppni sem er spiluð með fram útsláttarkeppninni. Sérfræðingar í ár eru Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar í Bestu deild kvenna, og Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvíkur í sömu deild. Aðili frá Fótbolta.net spáir einnig í leikina. Spáð er um úrslit allra leikja í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Fyrir hárréttar lokatölur fást þrjú stig en eitt stig ef rétt tákn er á leiknum.
Gylfi Tryggvason
Galatasary 0 - 1 Liverpool
Ég hef séð þennan leik 100 sinnum áður, frekar einfaldur 0-1 leikur. Eina sem gæti haft áhrif er að Alisson verður ekki í markinu sem gæti hjálpað Galatasary að ná einu marki yfir línuna en ég ætla að spá því að Liverpool finni samt leið til að loka þessu 0-1.
Atalanta 1 - 2 Bayern Munchen
Luis Diaz sér um þetta Atalanta lið. Hann hefur drepið í stærri stubbum.
Atletico Madrid 3 - 1 Tottenham
Tottenham eru í miklum vandræðum en Atletico Madrid hafa líka verið steiktir. Ég hef nákvæmlega enga trú á Igor Tudor með Tottenham og held að leikmenn séu sammála mér. Atletico vinnur þetta nokkuð þægilega.
Newcastle 2 - 2 Barcelona
Newcastle í miðri viku eru einfaldlega öðruvísi skepna. Þeir ná að skapa stemningu sem verður ekki lýst í orðum og það kemur þeim langt í þessari viðureign. Þeir komast í 2-0 en Barcelona eru alls ekki lélegt lið. Þeir finna leið til að jafna leikinn og bæði lið ágætlega sátt með niðurstöðuna. Anthony Gordon að sjálfsögðu með tvö, hver annar?
Óskar Smári Haraldsson
Galatasaray 1- 2 Liverpool
Þetta verður ljótur en að sama skapi fallegur 2-1 sigur Liverpool. Cody Gakpo heldur áfram að vera non factor og lappirnar á Salah eru búnar. Van Djik og Szobo með mörkin. Osimhen setur hann fyrir heimamenn.
Atalanta 1 - 3 Bayern Munchen
Þegar Liverpool selur Mane þá átti maður í erfiðleikum með það. En okei, þá sækja þeir Luiz Diaz og maður var fljótur að fyrirgefa söluna á Mane. En að selja Luis Diaz frá Liverpool og spila Gakpo þar viku eftir viku er ákvörðun sem ég mun aldrei fyrirgefa. Diaz með tvö og leggur upp eitt á Kane. Scamacca er töffari og hann setur eitt fyrir Atalanta.
Atletico Madrid 2 - 1 Tottenham
Er ráðningin á Igor Tudor leiðinlegasta ráðning allra tíma hjá ensku félagi? Eina sem hann hefur gert frá því hann mætti er að tala niður allt sem er búið að eiga sér stað og sér engar lausnir sjálfur. Herra hundleiðinlegur. Á fullt af Tottenham vinum sem ég finn mikið til með þessa daganna. Simeone fór svosem í einhvern sandkassaleik að segja að Atletico Madrid teljist ekki sigurstranglegri en Tottenham í viðureigninni en það er bara þvæla. Spái samt ágætis frammistöðu hjá Spurs sem fara ekkert alltof ósáttir í seinni leikinn einu marki undir. Romero skorar eða fær rautt, það er bókað mál.
Newcastle 1 - 1 Barcelona
Útspil Barca að fá að hvíla aðeins lengur kveikir í Eddie Howe og hans mönnum. Ég held að þetta verði frábær fótboltaleikur og við fáum allan pakkann hérna. Joelinton er hér um bil minn lang uppáhalds spilari í deildinni ef Liverpool leikmenn eru teknir út úr menginu og hann setur eitthvað þvælumark. Raphinha setur hann fyrir Barca.
Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke
Galatasaray 2 - 1 Liverpool
Enginn Íslendingur í Liverpool sem getur farið yfir hvernig á að þagga niður í Tyrkjunum. Osimhen setur bæði fyrir Gala og Salah er kominn í gang, skorar eina mark Liverpool - jafnvel úr víti. Fín úrslit fyrir Liverpool sem mun sigla áfram.
Atalanta 1 - 3 Bayern Munchen
Atalanta á því miður ekki séns en Urbig tekst samt að gefa eitt mark. Díaz með tvennu, Kane laumar einni stollu og Kalli frændi dýfir sér.
Atletico Madrid 1 - 0 Tottenham
Fyrri háflleikurinn verður sæmileg veisla en seinni hálfleikurinn leiðinlegur. Julian Alvarez með eina markið.
Newcastle 2 - 2 Barcelona
Háa línan hjá Flick, menn gleyma að pressa Dan Burn sem mun eiga eina pílu beint í lappir á Meistaradeildar Gordon. Lewis Hall mun skora jafnmörg og Yamal - alvöru einvígi framundan.
Staðan í heildarkeppninni:
Óskar Smári - 9
Fótbolti.net - 9
Gylfi Tryggva - 8
Athugasemdir




