Pochettino tekur í hendina á Jurgen Klopp eftir að hafa tapað úrslitaleik Meistaradeildarinnar á Metropolitano leikvanginum.
Mauricio Pochettino, fyrrverandi þjálfari Tottenham og núverandi þjálfari bandaríska landsliðsins, verður í stúkunni á Metropolitano leikvanginum þar sem Tottenham mætir Atletico Madrid í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, mun þar fylgjast með bandaríska miðjumanninum Johnny Cardoso ásamt því að horfa á sitt gamla lið.
Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, mun þar fylgjast með bandaríska miðjumanninum Johnny Cardoso ásamt því að horfa á sitt gamla lið.
Pochettino var við stjórnvölinn hjá Lundúnarliðinu þegar það tapaði úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2019 gegn Liverpool en sá leikur fór einmitt fram á Metropolitano leikvanginum.
Stuðningsmenn Tottenham sungu um Pochettino í 2–1 tapi liðsins gegn Newcastle á heimavelli í síðasta mánuði. Argentínumaðurinn hefur verið orðaður við endurkomu til félagsins síðan hann hætti þar árið 2019.
Pochettino mun stýra bandaríska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í sumar sem fer fram í Bandaríkjunum, en samningur hans rennur út að mótinu loknu.
Athugasemdir

