Fotbolti.net
10.04.15 - 12:03
Magnús Már Einarsson

Jói Þórhalls í Völsung (Staðfest)

Jói Þórhalls í Völsung (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Völsungur hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir átökin í 3. deild karla í sumar en Jóhann Þórhallsson hefur gengið í raðir félagsins.

Þessi reyndi markaskorari spilaði níu leiki með Þór í Pepsi-deildinni í fyrra eftir að hafa íhugað að leggja skóna á hilluna.
Hinn 35 ára gamli Jóhann hefur skorað 100 mörk í 262 deildar og bikarleikjum á ferli sínum.

Auk þess að spila með uppeldisfélagi sínu Þór þá hefur Jóhann leikið með KR, KA, Grindavík og Fylki á ferli sínum.

Völsungur féll úr 2. deildinni í fyrra en Páll Viðar Gíslason tók við þjálfun liðsins síðastliðið haust.

Páll Viðar þekkir Jóhann vel eftir að hafa þjálfað hann hjá Þór undanfarin ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.