Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Albert: Þetta var ekki auðvelt
Jón Dagur: Alvaran hefst í haust
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
   fös 10. apríl 2026 17:34
Snæbjört Pálsdóttir
Nýliðinn Linda Líf: Hann sendi á mig, ég svaraði, hann hringdi svo og lét mig vita
Eimskip
Linda Líf Boama er nýliði í A-landsliðshópnum
Linda Líf Boama er nýliði í A-landsliðshópnum
Mynd: KSÍ
Linda Líf segir miklar kröfur gerðar til liðsins í komandi heimaleikjum.
Linda Líf segir miklar kröfur gerðar til liðsins í komandi heimaleikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Linda Líf Boama er mætt í sitt fyrsta landsliðsverkefni með A-landsliðinu eftir sterka byrjun á tímabilinu í Svíþjóð. Hún segir það mikinn heiður að fá kallið og hlakkar til komandi heimaleikja þar sem mikið er undir.

„Það leggst bara mjög vel í mig. Það er bara spennandi og heiður að fá að vera partur af þessum hóp. Það er ætlast til mikils í næstu tveimur leikjum og bara gaman að vera partur af því,“ sagði Linda þegar Fótbolti.net ræddi við hana.


Linda segir tilfinninguna hafa verið sérstaka þegar hún fékk símtalið um að hún væri valin í hópinn.

„Mér finnst það nú mjög skemmtileg minning en þannig séð ekkert frásögu færandi. Ég var bara heima í Svíþjóð, hann sendi á mig, ég svaraði, hann hringdi og lét mig vita. Ég er bara sátt.“

Hverjir skyldu hafa heyrt stóru fréttirnar frá henni fyrst?

„Það var mamma að sjálfsögðu og kærastinn Leó, allir mjög glaðir.“

Linda hefur farið vel af stað í atvinnumennskunni með Kristianstad í Svíþjóð og kemur inn í verkefnið í frábæru formi og full sjálfstrausts. Ef hún fær tækifæri með landsliðinu ætlar hún að halda hlutunum einföldum.

„Maður er valinn af ástæðu og bara halda í kjarnann sinn. Ég er sterkur og fljótur leikmaður og mun alltaf geta sýnt það.“

Fram undan eru tveir mikilvægir heimaleikir og segir Linda stuðning úr stúkunni geta skipt sköpum.

„Það er náttúrlega bara ótrúlega mikilvægt, sérstaklega að fá svona tvo massífa leiki heima. Ég veit að Íslendingar hafa gaman af góðum fótbolta, þetta er góður fótbolti.“

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.


Slapp
banner