Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
Venni: Þurfum að hreiðra um okkur á toppnum
Elfar Árni: Viljum ekki hafa einhvern sem vill ekki vera hérna
Gunnar Heiðar talar um barnaleg mistök - „Verðum að gera betur í meistaraflokki"
Badu fann fyrir létti - „Ég á ekki að bregðast svona við"
Nenad: Er kominn með afsökun til að bekkja allt liðið
Gísli Eyjólfs: Við þurfum að fara vakna
Frábær frammistaða Keflvíkinga - „Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur"
Heimir óánægður með viðbrögð síns liðs: Fannst við aldrei reyna
Davíð Smári: Einhver tappi losnaði
Lárus Orri: Ekki eitthvað eitt sem hægt er að horfa í hvað það varðar
Hemmi svekktur: Stóru ákvarðanirnar allar á móti okkur í dag
Jói Kalli: Hörkugæði og hraði í þessum strák
Jakob Byström í viðtali á íslensku: Súper glaður
Brynjar Björn: Við verðum að nýta færin sem við fáum
Óli Skúla hundóánægður: Spiluðum þetta upp í hendurnar á þeim
Rúnar Kristins: Sjaldan fagnað eins mikið og núna
Langbesta frammistaða Mosfellinga - „Ungur og efnilegur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér”
Gils Gíslason: Við erum miklu betri en þessi tvö stig
Amin: Hélt að ég yrði alltaf í byrjunarliðinu og þyrfti ekki að verjast
Jökull segist ekki finna fyrir pressu - „Svekktur fyrir hönd liðsins“
   fös 10. apríl 2026 15:00
Snæbjört Pálsdóttir
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Eimskip
Thelma Karen Pálmadóttir er spennt fyrir komandi heimaleik gegn Úkraínu.
Thelma Karen Pálmadóttir er spennt fyrir komandi heimaleik gegn Úkraínu.
Mynd: KSÍ
Thelma Karen hefur unnið sér sæti í byrjunarliði Häcken
Thelma Karen hefur unnið sér sæti í byrjunarliði Häcken
Mynd: BK Häcken

Thelma Karen Pálmadóttir segir íslenska landsliðið staðráðið í að ná í sigur gegn Úkraínu í komandi heimaleik, sem er lykilleikur í baráttunni um þriðja sæti riðilsins.

„Já það er það, það er markmiðið okkar að halda okkur og enda í þriðja sæti. Þannig það er mjög mikilvægt að við vinnum Úkraínu og við munum bara gera allt til að vinna þær,“ sagði Thelma þegar Fótbolti.net ræddi við hana.

Hún segir stemninguna í hópnum góða fyrir tvo heimaleiki.

„Bara mjög vel, ég er bara mjög spennt. Það er mjög gaman að fá tvo heimaleiki og koma aðeins heim þannig ég held að við séum allar bara mjög spenntar.“


„Við erum alveg byrjaðar aðeins að fara yfir þeirra leik og svona. Það eru náttúrulega margar æfingar fram að leik, þannig að við nýtum bara allan tímann sem við höfum til að undirbúa okkur sem best.“

Thelma Karen kemur inn í verkefnið í góðu formi eftir að hafa unnið sér sæti í byrjunarliði sænska liðsins Häcken. Bjóst hún við því á þessum tímapunkti?

„Ég eiginlega veit það ekki, nei kannski ekki en ég vissi alveg að staðan, þessi hægri kantmannastaða í Häcken væri svolítið opin. Ég var kannski ekki alveg að búast við því að vera í svona stóru hlutverki strax en mér finnst það bara mjög fínt.“

Hún segir atvinnumennskuna hafa hjálpað sér að þróa leik sinn.

„Ég myndi segja alls konar smáatriði, sem er náttúrulega farið meira út í og meir tíma eytt í, í atvinnumennsku heldur en hérna heima. Þannig að alls konar svona litlir hlutir sem fólk kannski tekur ekkert eftir.“

Hjá Häcken hitti Thelma Karen fyrir landsliðsfélaga sinn hana Fanneyju Ingu Birkisdóttur, hvernig er að hafa hana í liðinu?

„Það er bara frábært, hún er búin að hjálpa mér ekkert eðlilega mikið og bara búin að gera allt miklu, miklu auðveldara fyrir mig. Ég er mjög þakklát að hún sé þarna.“

Fram undan eru stórleikir hjá félagsliði hennar þar sem hún mun mæta öðrum liðsfélaga í landslinu henni Guðrúnu Arnardóttur.

„Við ræddum þetta aðeins í gær að við erum að fara hittast bara daglega þarna á einhverjum tveim vikum eða eitthvað. Þetta er bara mjög spennandi, það er alltaf gaman að fara í svona úrslitaleiki.“

Að lokum segir hún stuðning úr stúkunni skipta miklu máli.

„Það er gríðarlega mikilvægt, við vonumst til þess að fá mikið af fólki á völlinn. Þetta verður vonandi skemmtilegur leikur til að horfa á.“


Slapp
banner
banner
banner