Mikel Arteta var himinlifandi eftir dramatískan sigur Arsenal á útivelli gegn fallbaráttuliði West Ham í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Þetta var ótrúlega mikilvægur leikur fyrir bæði lið og skoraði Leandro Trossard eina markið á 83. mínútu. West Ham náði að setja jöfnunarmark í uppbótartíma sem var að lokum ekki dæmt gilt svo lokatölur urðu 0-1. Sigurinn heldur Arsenal í bílstjórasætinu í baráttunni um langþráðan úrvalsdeildartitil.
„Við byrjuðum leikinn svo vel, við sköpuðum þrjú stór marktækifæri en náðum ekki að setja boltann í netið. Svo meiddist Ben White og við náðum ekki að aðlagast eftir skiptinguna svo ég þurfti að skipta (Riccardo) Calafiori líka af velli sem var ekki tilvalin staða að vera í. Mér fannst við sýna mikið hugrekki með þessum skiptingum og að lokum vorum við verðlaunaðir þökk sé Martin (Ödegaard) sem kom inn af bekknum og gerði ótrúlega vel að búa til sigurmarkið," sagði Arteta, sem var svo spurður út í dramatískar lokamínútur leiksins þegar Hamrarnir komu boltanum í netið eftir hornspyrnu.
Markið var upprunalega gefið en eftir athugun í VAR-herberginu var Chris Kavanagh dómari sendur í skjáinn og sneri ákvörðun sinni við til að dæma sóknarbrot á portúgalska framherjann Pablo sem truflaði David Raya ólöglega með handleggnum sínum.
„Þetta er fegurðin við úrvalsdeildina. Það var rosalegur atgangur í teignum, þeir voru meira að segja með markmanninn sinn í teignum okkar, og þeim tókst að skora. Það tók mikið hugrekki fyrir dómarateymið til að grandskoða atvikið í VAR og breyta svo ákvörðuninni. Ég held að allir geti verið sammála um að þetta er augljóst brot, David (Raya) er nánast með boltann í höndunum en getur ekki haldið honum útaf augljósu broti. Þeir nýttu sér það til að skora þetta mark sem var réttilega dæmt af.
„Ég hef kallað eftir auknu samræmi í dómgæslu allt tímabilið og þetta er góð stund útaf því að það var sagt skýrt á upphafi tímabils að svona má ekki gera. Þetta er svo stór ákvörðun útaf því að bæði lið eru í ótrúlega harðri baráttu í lokaumferðum tímabilsins.
„Ég bjóst við að þetta yrði dæmt af en það er aldrei að vita. Þetta var risastór ákvörðun sem féll sem betur fer með okkur. Þessi stig eru svo mikilvæg fyrir okkur."
Arteta hrósaði Raya og Ödegaard í hástert eftir sigurinn þar sem Raya átti nokkrar afar mikilvægar markvörslur.
„Maður þarf leikmenn sem geta gert magnaða hluti undir pressu ef maður vill vinna titla. David og Martin Ödegaard gerðu það í dag. Við erum í sjöunda himni eftir þessa viku, hún er búin að vera ótrúleg. Alvöru rússíbanareið."
Arsenal tryggði sér þátttökurétt í úrslitaleik Meistaradeildarinnar með sigri gegn Atlético Madrid á þriðjudaginn, nokkrum dögum eftir að hafa lagt Fulham að velli í mikilvægum slag í úrvalsdeildinni. Lærlingar Arteta héldu hreinu alla þrjá leikina og virðast vera í góðum gír fyrir lokavikur tímabilsins.
Arsenal tekur á móti föllnu liði Burnley um næstu helgi áður en liðið heimsækir Crystal Palace í lokaumferðinni.
10.05.2026 19:22
Nuno ósáttur með ósamræmi í dómaraákvörðunum




