Fotbolti.net
10.05.26 - 14:23
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarlið West Ham og Arsenal: Nuno með fimm manna vörn - Óbreytt hjá gestunum

Todibo kemur inn í vörnina hjá West Ham

Todibo kemur inn í vörnina hjá West Ham

Canon

Mynd: EPA

West Ham United og Arsenal mætast í einum mikilvægasta leik ársins í titilbaráttunni, en Arsenal má ekki við því að tapa stigum gegn grönnum sínum á Ólympíuleikvanginum. Leikurinn hefst klukkan 15:30.
Nuno Espirito Santo, stjóri West Ham, ætlar að vera með fimm manna vörn gegn Arsenal, eins og hann gerði í 1-1 jafnteflinu gegn Manchester City.

Jean-Clair Todibo kemur inn í liðið í stað Pablo og þá er Aaron Wan-Bissaka í hægri bakverðinum í stað Kyle Walker-Peters.

Mikel Arteta er með sama lið og vann Atlético Madríd, 1-0, í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í vikunni.

Arsenal getur aftur náð fimm stiga forystu á Man City í titilbaráttunni á meðan West Ham þarf sigur til að komast upp úr fallsæti.

West Ham: Hermansen, Wan-Bissaka, Mavropanos, Disasi, Todibo, Diouf, Fernandes, Soucek, Summerville, Bowen, Taty

Arsenal: Raya; White, Saliba, Gabriel, Calafiori; Rice, Lewis-Skelly, Eze; Saka, Gyokeres, Trossard

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City3+59
2Arsenal3+59
3Hull City3+37
4Chelsea3+16
5Brentford3+35
6Liverpool3+25
7Newcastle3+25
8Everton3+25
9Leeds3+15
10Brighton3+34
11Man Utd3+14
12Sunderland304
13Crystal Palace3-43
14Ipswich Town3-43
15Bournemouth3-12
16Nott. Forest3-12
17Aston Villa3-51
18Tottenham3-51
19Fulham3-30
20Coventry3-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.