Fotbolti.net
10.05.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Óeirðir í Tékklandi - Köstuðu blysum og réðust á leikmenn

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Canon

Mynd: EPA

Grannaslagur Slavia og Sparta Prag í tékknesku deildinni þróaðist út í svakalegar óeirðir þegar hundruðir stuðningsmanna Slavia ruddust inn á völlinn með blys í hendi.
Slavia var með 3-2 forystu og var hársbreidd frá því að gulltryggja sér titilinn þegar stuðningsmennirnir ruddust inn á völlinn í uppbótatíma.

Margir héldu á blysum og köstuðu þeim í áttina að stuðningsmönnum Sparta. Þá sakaði Jakub Surovcik, markvörður Sparta, stuðningsmenn að hafa ráðist á sig og hann segist ætla að kæra.

Fjölmiðlar greina frá því að annar leikmaður og maður í læknateymi Sparta hafi orðið fyrir barðinu á stuðningsmönnunum. Dómarinn stöðvaði leikinn og lögreglan tók ákvörðun að lokum að hætta við hann alveg.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.