Fotbolti.net
10.05.26 - 21:06
Ívan Guðjón Baldursson

Spánn: Tryggðu titilinn í El Clásico

Rashford með glæsilegt aukaspyrnumark

Rashford og Torres afgreiddu Real Madrid í El Clásico slagnum.

Rashford og Torres afgreiddu Real Madrid í El Clásico slagnum.

Canon

Mynd: EPA

Barcelona 2 - 0 Real Madrid
1-0 Marcus Rashford ('9 )
2-0 Ferran Torres ('18 )
Barcelona og Real Madrid áttust við í El Clásico slagnum í kvöld og komust heimamenn í tveggja marka forystu á fyrstu 18 mínútum leiksins.

Fyrst skoraði Marcus Rashford með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu og tvöfaldaði Ferran Torres forystuna eftir magnaða stoðsendingu frá Dani Olmo. Torres gerði mjög vel að klára færið með marki en Olmo átti góðan sprett og sturlaða hælsendingu til að leggja upp.

Gestirnir frá Madríd fengu færi til að minnka muninn í fyrri hálfleik en Börsungar tóku enn meiri stjórn á leiknum í síðari hálfleik. Real sá varla til sólar og sigldu heimamenn þægilegum sigri í höfn. Lokatölur 2-0.

Barcelona tryggði sér Spánarmeistaratitilinn með þessum sigri og því hefur liðið unnið La Liga bæði árin undir stjórn Hansi Flick.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona12+3533
2Real Madrid12+2130
3Atletico Madrid12+1328
4Betis12+526
5Real Sociedad12+122
6Sevilla12-218
7Athletic11+416
8Villarreal12+215
9Deportivo12+115
10Racing Santander12-1314
11Celta12013
12Alaves12-213
13Espanyol12-112
14Vallecano11-612
15Getafe12-1012
16Osasuna12-1112
17Levante12-511
18Elche12-610
19Valencia12-129
20Malaga12-145
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.