Fotbolti.net
10.05.26 - 16:24
Brynjar Ingi Erluson

Viktor Bjarki skoraði eftir tæpa mínútu

Viktor Bjarki er búinn að eiga frábært tímabil með FCK

Viktor Bjarki er búinn að eiga frábært tímabil með FCK

Canon

Mynd: EPA

Viktor Bjarki Daðason skoraði þriðja deildarmark sitt á tímabilinu og það á innan við fjórum vikum í 4-0 stórsigri FCK á Silkeborg í neðri hluta umspilinu í dönsku úrvalsdeildinni í dag.
Framarinn skoraði sitt fyrsta deildarmark gegn Velje um miðjan apríl og er nú kominn í góðan gír.

Það var ekki komin mínúta á klukkuna er Viktor skoraði fyrsta mark FCK eftir frábæra sendingu Gabriel Pereira.

Thomas Delaney bætti við öðru fyrir lok fyrri hálfleiks. Youssoufa Moukoko kom inn á fyrir Viktor Bjarka undir lokin og skoraði Moukoko úr vítaspyrnu sex mínútum síðar áður en Victor Claesson rak síðasta naglann í kistu Silkeborg.

FCK er á toppnum í neðri hlutanum og fer í umspil um sæti í Sambandsdeild Evrópu.

Rúnar Alex Rúnarsson var allan tímann á bekknum hjá FCK.

Hjörtur Hermannsson var í vörn Volos sem tapaði fyrir Herði Björgvini Magnússyni og félögum í Levadiakos, 3-0. Hörður var á bekknum hjá Levadiakos sem er einum sigri frá því að tryggja sér fimmta sæti grísku deildarinnar.

Daníel Tristan Guðjohnsen kom inn af bekknum hjá Malmö í 3-2 tapi Häcken í sænsku úrvalsdeildinni. Arnór Sigurðsson var ekki með Malmö sem er í 7. sæti með 10 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.