Franski sóknarmaðurinn Kylian Mbappe var reiður yfir ummælum sem Olivier Giroud lét falla í viðtali eftir 3-0 sigur Frakklands á Búlgaríu á þriðjudag en þetta herma heimildir franska blaðsins L'Equipe.
Giroud kom inná sem varamaður fyrir Karim Benzema undir lok fyrri hálfleiks og tókst að skora tvö mörk í síðari hálfleiknum.
Framherjinn var þó ekki ánægður með aðstoðina sem hann fékk í leiknum en Mbappe var harðlega gagnrýndur eftir leikinn fyrir að senda ekki á Giroud.
Samkvæmt L'Equipe var Mbappe reiður yfir ummælum sem Giroud lét falla eftir leik en Giroud sagðist alltaf hafa farið í réttu hlaupin en sendingarnar bárust aldrei.
Mbappe vildi jafnvel ganga svo langt að vera með yfirlýsingu á blaðamannafundi eftir leik og útskýra mál sitt en það varð þó ekki að veruleika.
Athugasemdir