Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 10. júní 2026 10:12
Kári Snorrason
Sir Alex fór fögrum orðum um Tómas - „Geðveikt verandi United maður“
Mynd: Hearts
„Ég held að þetta hafi nú verið eitthvað kryddað þegar þetta kom hingað,“ sagði Tómas Bent Magnússon aðspurður um söguna um að Sir Alex Ferguson hefði sagt hann langbestan í liði Hearts í Skotlandi.

Benedikt Bóas Hinriksson sagði frá meintum ummælum Sir Alex í útvarpsþættinum Fótbolta.net í mars. „Hann segir að leikmaður númer 22 (Tómas) er langbestur í þessu liði,“ kom meðal annars fram.

Sagan var borin undir Tómas í viðtali við Fótbolta.net í gær og sagði hann Sir Alex hafa vissulega borið lof á sig.

„Hann fór fögrum orðum um mann heyrði ég. Geðveikt að hann hafi mætt á leik og séð mann spila. Þetta var geðveikt verandi United maður.“

„Nei, hann kom samt niður og kíkti á skrifstofu þjálfarans. Ég hefði kannski betur átt að banka upp á þegar hann var þar,“ sagði Tómas jafnframt.

Hægt er að horfa á viðtalið við Tómas í heild sinni í spilaranum hér að neðan.


Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
Slapp
banner