Tómas Bent Magnússon var ekki valinn í landsliðshópinn sem mætir Kanada og Haítí í vináttuleikjum í komandi landsliðsverkefni.
Tómas hefur verið í stóru hlutverki hjá Hearts sem er á toppi skosku deildarinnar. Hann var keyptur frá Val í ágúst í fyrra eftir að hafa verið einn besti leikmaður Valsliðsins mánuðina á undan.
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardaginn var Benedikt Bóas Hinriksson ósáttur með að Tómas hafi ekki verið valinn í landsliðshópinn og sagði góða sögu af Sir Alex Ferguson sem var hrifinn af Tómasi.

„Ég er mjög ósáttur við að Tómas Bent sé ekki í þessu landsliði. Ég bara skil þetta ekki. Maðurinn er vissulega meiddur núna, kinnbeinsbrotinn. En Arnar hringir aldrei í hann og ætlar ekkert að velja hann. Mér finnst það með hreinum ólíkindum að Tómas Bent sé ekki í þessu landsliði.
Ég get sagt ykkur sögu sem er sönn. Hearts heimsótti Aberdeen í febrúar og unnu 1-0. Heiðursgestur leiksins var Sir Alex Ferguson. Eftir leik fer hann í leikmannasvítuna og talar þar meðal annars við Tómas og stjóra Hearts.
Hann segir að leikmaður númer 22 (Tómas) er langbestur í þessu liði. Ef að Alex Ferguson segir að þetta sé rosalega góður leikmaður, stór, sterkur og gerir alla betri í kringum sig þá hefði íslenska landsliðið einhvern tímann þurft svona leikmann. Sérstaklega þegar að Alex Ferguson segir það. Þetta eru einu rökin sem þú þarft, Ferguson sagði þetta,“ sagði Benedikt Bóas í útvarpsþættinum.
Athugasemdir