10.07.15 - 13:30
Magnús Már Einarsson
Asamoah Gyan til Kína (Staðfest)

Nóg til!

Mynd: Getty Images

Nóg til!

Mynd: Getty Images
Asamoah Gyan hefur skrifað undir samning hjá Shanghai SIPG í Kína en um leið verður hann einn launahæsti leikmaður heims.
Gyan mun fá 227 þúsund pund í vikulaun eða 47 milljónir íslenskar krónur fyrir að spila með Shanghai en þjálfari þar er Sven-Goran Eriksson.
„Ég þakka Guði fyrir þennan sérstaka dag, fjölskyldu minni, fyrrum liðsfélögum mínum hjá Al Ain og stuðningsmönnum mínum,\" sagði Gyan í dag.
Gyan hefur verið að fá vel borgað undanfarin ár en frá árinu 2011 hefur hann spilað með Al Ain í Sameinuðu arabísku Furstadæmunum.
Þar áður var Gyan á mála hjá Sunderland, Rennes og Udinese.