10.07.15 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Sevilla fær Konoplyanka frítt (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Yevhen Konoplyanka er talinn meðal bestu kantmanna Evrópu um þessar mundir þar sem hann hefur leitt úkraínska liðið Dnipro Dnipropetrovsk til dáða bæði í deild og Evrópu undanfarin ár.
Konoplyanka átti stóran þátt í því að koma Dnipro alla leið í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í vor þar sem liðið tapaði fyrir Sevilla, sem vann keppnina annað árið í röð.

Konoplyanka hefur verið eftirsóttur af Liverpool og Tottenham undanfarin ár en Dnipro vildi ekki selja leikmanninn sinn nema fyrir væna fúlgu fjárs. Samningur Konoplyanka rann þó út í sumar og valdi kantmaðurinn Sevilla sem næsta áfangastað.
Konoplyanka er 25 ára gamall og hefur skorað 44 deildarmörk í 156 leikjum fyrir uppeldisfélag sitt auk þess sem hann hefur gert 10 mörk í 45 landsleikjum.
Leikmaðurinn er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við spænska félagið og er falur fyrir 40 milljónir evra, eða 29 milljónir punda, samkvæmt samningsákvæði.
Tottenham og Liverpool berjast um Konoplyanka
Konoplyanka að ganga í raðir Liverpool
Rodgers um Konoplyanka: Tíminn er knappur
BBC: Konoplyanka búinn í læknisskoðun hjá Liverpool
Konoplyanka fer ekki til Liverpool
Forseti Dnipro neitaði að skrifa undir skipti Konoplyanka

Heimild: ISF