Fotbolti.net
10.07.15 - 19:30
Stefán Haukur

Shay Given og Van Ginkel til Stoke (Staðfest)

Van Ginkel spilar með Stoke á næsta tímabili.

Van Ginkel spilar með Stoke á næsta tímabili.

Canon

Mynd: getty

Stoke City hefur fengið til liðs við sig þá Shay Given og Marco Van Ginkel.

Given kemur frítt til félagsins eftir að Aston Villa lét hann fara í sumar en Van Ginkel kemur á láni frá Chelsea.

Given stóðst læknisskoðun á föstudaginn og hefur nú skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Þetta er í annað skipti sem Given vinnur með Mark Hughes en hann lék með Manchester City þegar Hughes stjórnaði liðinu.

„Ég þekki Shay mjög vel eftir að hafa unnið með honum hjá City og ég hlakka mikið til að vinna með honum aftur,“ sagði Hughes í viðtali við heimasíðu félagsins.

Van Ginkel kom til Chelsea frá Vitesse árið 2013 en spilaði ekki marga leiki fyrir félagið það árið vegna meiðsla en hann var á láni hjá AC Milan á síðasta tímabili.

Líklegt er að Asmir Begovic, markvörður Stoke fari í hina áttina henn hann hefur verið sterklega orðaður við Chelsea síðustu daga.
Given kemur frítt til Stoke.

Given kemur frítt til Stoke.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.