10.07.15 - 09:23
Magnús Már Einarsson
Yohan Cabaye til Crystal Palace á metfé (Staðfest)

Mynd: Twitter

Mynd: Twitter
Crystal Palace hefur keypt miðjumanninn Yohan Cabaye frá frönsku meisturunum í PSG.
Cabaye kemur á tíu milljónir punda og verður um leið dýrasti leikmaðurinn í sögu Crystal Palace.
Fyrra metið var sjö milljónir punda sem félagið borgaði Wigan fyrir James McArthur í fyrra.
Cabaye skrifaði undir þriggja ára samning við Palace en kaupverðið á honum gæti hækkað upp í þrettán milljónir punda ef hann stendur sig vel.

Alan Pardew, stjóri Palace, þekkir Cabaye vel en hann keypti leikmanninn til Newcastle árið 2011. Cabaye spilaði með Newcastle þar til í janúar 2014 þegar hann gekk til liðs við frönsku meistarana í PSG.