Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 10. júlí 2019 18:52
Magnús Þór Jónsson
Byrjunarlið Vals: Birkir Már ekki í hóp
Mynd: Hulda Margrét
Byrjunarlið Valsmanna hefur verið tilkynnt fyrir Meistaradeildarleik þeirra við Maribor í kvöld.

Stórar fréttir eru úr þeirra herbúðum þar sem að Birkir Már Sævarsson er utan hóps í kvöld, skýringar eru ekki komnar á fjarverunni.  Fróðlegt verður að sjá uppröðun Valsaranna án hans en samkvæmt upplýsingum á UEFA síðunni verður Lasse Petry hægri bakvörður og Haukur Páll og Eiður Aron hafsentar.

Uppfært:  Birkir Már er tognaður aftan í læri og óvíst með endurkomu!


Byrjunarlið Vals:

1. Hannes Þór Halldórsson (m)

6. Sebastian Hedlund

7. Haukur Páll Sigurðsson (f)

9. Patrick Pedersen

10. Kristinn Freyr Sigurðsson

11. Sigurður Egill Lárusson

17. Andri Adolphsson

19. Lasse Petry

21. Bjarni Ólafur Eiríksson

23. Eiður Aron Sigurbjörnsson

71. Ólafur Karl Finsen

Textalýsingu er að finna á þessum þræði:

https://fotbolti.net/game.php?action=view_game&id=3742


Athugasemdir
banner
banner