Eder Militao, nýr varnarmaður Real Madrid, þurfti að ganga út af blaðamannafundi sínum í dag. Það leið næstum því yfir hann.
Militao var keyptur til Real Madrid fyrir 43 milljónir punda frá Porto fyrr í sumar.
Eftir að hafa gengist undir læknisskoðun var hann kynntur fyrir blaðamönnum í dag. Militao kvartaði yfir óþægindum og svima á fundinum og gat hann ekki klárað hann.
Hitinn í spænsku höfuðborginni var eitthvað að trufla Militao.
Hér að neðan má sjá myndband af því þegar Militao gekk út.
Video | Militão started feeling dizzy and had to end the press conference. pic.twitter.com/RZrIbxVNYo
— Real Madrid Info (@RMadridInfo) July 10, 2019
Athugasemdir