Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 10. júlí 2019 08:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tielemans: Félag með mikinn metnað
Mynd: Getty Images
Youri Tielemans gekk í fyrradag aftur í raðir Leicester á metfé. Tielemans var seinni hluta tímabilsins á láni frá Mónakó og þótti standa sig afar vel. Manchester United hafði áhug á að kaupa hann en Tielemans endaði hjá Leicester.

Tielemans skrifaði undir fjögurra ára samning við Leicester. Umboðsmaður hans sagði honum að bíða og sjá hvort United myndi bjóði í sig en Tielemans vildi ekki bíða og skrifaði undir.

„Þetta er það sem ég vildi. Ég vildi spila hjá þessu félagi sem er með mjög jákvæða áru yfir sér eins og stendur," sagði Tielemans við LFC TV.

„Ég er mjög glaður að vera hér. Ég leyfði mér að hugsa stöðuna en ég fann að ég vildi koma aftur. Það er frábært að vera kominn aftur. Þetta er félag með mikinn metnað og mér leið vel hér fyrri hluta árs.

„Ég vildi skrifa undir nægilega snemma til að ná undirbúningstímabilinu en ég vildi samt ekki drífa mig um of."


Tielemans skoraði þrjú mörk í þrettán leikjum á síðustu leiktíð með Leicester.


Athugasemdir
banner
banner