Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
fimmtudagur 25. apríl
Mjólkurbikar karla
þriðjudagur 23. apríl
föstudagur 19. apríl
þriðjudagur 16. apríl
Meistarar meistaranna konur
mánudagur 15. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 12. apríl
Besta-deild karla
þriðjudagur 9. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 8. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 5. apríl
Undankeppni EM kvenna
mánudagur 1. apríl
Meistarar meistaranna
sunnudagur 31. mars
Enska úrvalsdeildin
föstudagur 29. mars
Úrslitaleikur Lengjubikars kvenna
miðvikudagur 27. mars
Úrslitaleikur Lengjubikarsins
þriðjudagur 26. mars
Umspilsleikur um EM sæti
U21 karla - EM 25 undankeppni
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
miðvikudagur 20. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
þriðjudagur 26. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
mánudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 24. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
miðvikudagur 24. apríl
Engin úrslit úr leikjum í dag
mán 10.ágú 2020 13:52 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Bjarni fylgdi lönguninni, flutti erlendis og vann sig upp í fótboltaheiminum - „Mjög hollt og lærdómsríkt"

Bjarni Mark Duffield er Siglfirðingur sem lesendur fá að fræðast um í þessari grein. Hann steig sín fyrstu skref í boltanum hjá KS áður en hann lék með KF, KA, Fjarðabyggð, Kristianstad, KA aftur og svo Brage þar sem hann er á mála núna.

Bjarni hefur verið að glíma við meiðsli í sumar en var kominn í leikmannahóp Brage síðastliðinn mánudag og lék sinn fyrsta leik í deildinni nú á föstudag. Fótbolti.net hafði samband við Bjarna í liðinni viku og fór yfir ferilinn til þessa með honum.

Bjarni í leik með Fjarðabyggð - Það var bara einhver tilfinning að KA væri augljósa valið
Bjarni í leik með Fjarðabyggð - Það var bara einhver tilfinning að KA væri augljósa valið
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Tinna Mark Duffield - Ég fékk að umgangast systur mína og fjölskyldu hennar mjög mikið.
Tinna Mark Duffield - Ég fékk að umgangast systur mína og fjölskyldu hennar mjög mikið.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anton Mark Duffield - Ég lærði bókstaflega að spila fótbolta af pabba, svo í raun allt.
Anton Mark Duffield - Ég lærði bókstaflega að spila fótbolta af pabba, svo í raun allt.
Mynd/Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Mig langaði alltaf að flytja erlendis eftir að ég myndi útskrifast og var ég með í samningnum mínum hjá KA að ef ég hefði tækifæri á því að þá myndu þeir leyfa mér að fara.
Mig langaði alltaf að flytja erlendis eftir að ég myndi útskrifast og var ég með í samningnum mínum hjá KA að ef ég hefði tækifæri á því að þá myndu þeir leyfa mér að fara.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þetta var sumarið þar sem að ég sýndi loksins fólki á Íslandi hvað ég gat í rauninni .
Þetta var sumarið þar sem að ég sýndi loksins fólki á Íslandi hvað ég gat í rauninni .
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Þessi tími var ótrúlega þroskandi fyrir mig bæði sem fótboltamann og manneskju almennt.
Þessi tími var ótrúlega þroskandi fyrir mig bæði sem fótboltamann og manneskju almennt.
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mig langaði alltaf að flytja erlendis eftir að ég myndi útskrifast og var ég með í samningnum mínum hjá KA að ef ég hefði tækifæri á því að þá myndu þeir leyfa mér að fara.
Mig langaði alltaf að flytja erlendis eftir að ég myndi útskrifast og var ég með í samningnum mínum hjá KA að ef ég hefði tækifæri á því að þá myndu þeir leyfa mér að fara.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það helsta svona fyrir utan grunnhluti myndi ég þó segja að ég lærði inn á skallaeinvígi af honum og hvernig eigi að fara upp í þau til að vinna.
Það helsta svona fyrir utan grunnhluti myndi ég þó segja að ég lærði inn á skallaeinvígi af honum og hvernig eigi að fara upp í þau til að vinna.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
...höfðu sennilega ekkert auga á mér meðan ég var þarna úti, nema KA sem er minn klúbbur.
...höfðu sennilega ekkert auga á mér meðan ég var þarna úti, nema KA sem er minn klúbbur.
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Tíminn hjá Fjarðabyggð var mjög mikilvægur fyrir mig því það varð fyrsta heila tímabilið mitt í meistaraflokki þar sem að ég spilaði alla leiki og lærði helling af Binna Gests.
Tíminn hjá Fjarðabyggð var mjög mikilvægur fyrir mig því það varð fyrsta heila tímabilið mitt í meistaraflokki þar sem að ég spilaði alla leiki og lærði helling af Binna Gests.
Mynd/Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Já 100%. Ég er oft í stuttbuxum hérna úti þegar Svíarnir eru að frjósa og þeir eru alltaf jafn hneykslaðir á mér.
Já 100%. Ég er oft í stuttbuxum hérna úti þegar Svíarnir eru að frjósa og þeir eru alltaf jafn hneykslaðir á mér.
Mynd/Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Eftir að Tufa setti mig djúpan á miðjuna og ég fékk traustið frá honum þar þá gekk mjög vel og ég fann mig í klassíska 'Arons Einars hlutverkinu' á miðjunni.
Eftir að Tufa setti mig djúpan á miðjuna og ég fékk traustið frá honum þar þá gekk mjög vel og ég fann mig í klassíska 'Arons Einars hlutverkinu' á miðjunni.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
...ákvað ég að senda á Srdjan Tufegdzic, þáveranda þjálfara KA, sem hafði sent mér nokkrum mánuðum áður að hann vildi fá mig heim
...ákvað ég að senda á Srdjan Tufegdzic, þáveranda þjálfara KA, sem hafði sent mér nokkrum mánuðum áður að hann vildi fá mig heim
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Ég var á hræðilegum samningi, þurfti að vinna með fótboltanum og læra að lifa á lágri innkomu sem var mjög hollt og lærdómsríkt"
Fjölhæfur örvfættur leikmaður
Byrjað var á því að fræðast um hvernig leikmaður Bjarni er án þess þó að fara í of djúpar greiningar.

„Ég er leikmaður sem getur leyst allar stöður á miðjunni, miðvörð og vinstri bakvörð. Ég er örvfættur og finnst skemmtilegast að spila á miðjunni," sagði Bjarni.

Hverjir eru að mati Bjarna hans styrkleikar? En veikleikar?

„Ég er góður bæði í loftinu og í návígum. Ég er svo með fínasta vinstri fót. Veikleikar mínir eru þeir að ég spila of einfalt og gleymi stundum að horfa í kringum mig."

Gaf ákveðinn styrk sem hjálpar helling í dag
Bjarni er uppalinn á Siglufirði og voru félagaskipti hans í KA frá KF. Hvernig var málum háttað í yngri flokkunum, náði liðið á Sigló alltaf að manna lið á öllum mótum?

„Ég spilaði mest með KS í yngri flokkunum, Knattspyrnufélagi Siglufjarðar. Minningin af því er mjög góð, pabbi þjálfari og mikill sjarmi yfir því að æfa fáir og innanhús stóran hluta úr árinu. Þegar maður lítur til baka þá hefðu betri aðstæður örugglega hjálpað helling við að verða betri í fótbolta en þetta gaf manni þó líka ákveðinn styrk á öðrum sviðum sem hjálpar helling í dag."

„Við náðum alltaf í lið, já, þótt það hafi nú ekki verið alltof margir í boði, sérstaklega í sjö manna bolta. En við áttum það svo til að sameinast t.d. Tindastóli, Hvöt og Leiftri þegar kom að því að spila ellefu manna bolta. Síðan spilaði ég eitt ár með KF og þá náðum við alveg í lið og vorum bara þokkalega góðir."


Einhver tilfinning að KA væri augljósa valið
Bjarni skipti yfir í KA árið 2011 þegar hann hóf skólagöngu í Menntaskólanum á Akureyri. Var einfalt að velja KA á þeim tímapunkti?

„Já það var frekar einfalt val ef ég er alveg heinskilinn. Ég þurfti að komast í betra æfingaumhverfi og í stærra lið, svo skrefið til KA var mjög vel heppnað á sínum tíma og varð ég fljótt gerður að KA-manni."

Fréttaritari ýtti eftir ítarlegra svari með þessa spurningu og spurði hreint út hvort það hefði ekki komið til greina að fara í Þór.

„Það kom aldrei til greina að fara í Þór frekar en KA. Veit ekki hvað það var, en KA virkaði bara betur á mig en Þór, ekkert illt í þeirra garð en það var bara einhver tilfinning að KA væri augljósa valið."

Mikilvægt að fá að spila
Bjarni kom við sögu í þremur leikjum með KA sumarið 2014 en lék svo 22 leiki með Fjarðabyggð sumarið 2015. Hvernig kom það til að hann hélt austur á firði?

„Þetta byrjaði bara með því að það leit út fyrir að ég væri að fara fá alltof lítinn spilatíma hjá KA sem þá spilaði í 1. deildinni, þannig að ég fékk leyfi frá KA til að leita í kringum mig. Það endaði svo með að ég var í sambandi við Brynjar Þór Gestsson, þáverandi þjálfara Fjarðabyggðar, sem var þá í sömu deild og KA og fékk að spila með þeim æfingaleik."

„Eftir þann leik vildi Fjarðabyggð fá mig á láni yfir tímabilið sem KA samþykkti síðan. Tíminn hjá Fjarðabyggð var mjög mikilvægur fyrir mig því það varð fyrsta heila tímabilið mitt í meistaraflokki þar sem að ég spilaði alla leiki og lærði helling af Binna Gests."


Vildi flytja erlendis - Mjög hollt og lærdómsríkt
Næsta skref Bjarna á ferlinum tók hann eftir tímabilið með Fjarðabyggð. Þá hélt hann til Svíþjóðar og var þar í tvö ár hjá Kristianstad. Fyrsta spurningin út í veruna hjá Kristianstad var einföld: Hvernig kom Kristianstad upp á borðið?

„Eftir tímabilið mitt hjá Fjarðabyggð kom ég aftur til KA en hafði þá lokið stúdentsprófi frá MA. Mig langaði alltaf að flytja erlendis eftir að ég myndi útskrifast og var ég með í samningnum mínum hjá KA að ef ég hefði tækifæri á því þá myndi félagið leyfa mér að fara. Mig langaði að flytja til Skandinavíu, læra nýtt tungumál og reyna vinna mig upp í fótboltaheiminum, þar sem að eini möguleikinn sem ég hafði á Íslandi var í raun KA og ég taldi mig þurfa nýja áskorun en að spila aftur í 1. deildinni."

„Ég hef því samband við Gylfa Sigurðsson sem býr í Kristianstad og vinnur sem umboðsmaður og athugaði hvort hann gæti reddað því að fengi að æfa með Kristianstad. Ástæðan fyrir því að það var Kristianstad er að systir mín er búsett í Kristianstad og hafði ég komið þangað í heimsókn oft og vissi að liðið þar spilaði í 3. efstu deild Svíþjóðar sem heitir Division 1, sem var flott deild til að byrja þetta ferðalag mitt í."

„Ég keypti mér flugmiða til Svíþjóðar, gisti hjá systur minni og átti að fá að æfa með Kristianstad í eina viku. Á annarri æfingunni segir þjálfarinn við mig að ég sé ekkert að fara aftur heim því að þeir hjá félaginu vildu fá mig í raðir félagsins. Þetta endaði með því að ég notfærði mér ekkert flugmiðann heim og varð eftir í Kristianstad og skrifaði undir tveggja ára samning við félagið."


Hver var styrkleikinn á liði Kristianstad og Division 1?

„Þetta var mjög gott lið á þeim tíma með marga góða leikmenn sem spila í efstu eða næstefstu deild í Svíþjóð í dag. Þjálfarinn kenndi mér einnig helling og þjálfar í úrvalsdeildinni í dag. Þessi deild er frekar sterk, liðið var betra en KA myndi ég segja og deildin sterkari en 1. deildin á Íslandi svo þetta var frábært skref."

Þegar Bjarni lítur til baka er hann sáttur með þessa veru hjá Kristianstad?

„Ég er rosalega sáttur við þennan tíma. Ég fékk að umgangast systur mína og fjölskyldu hennar mjög mikið ásamt öllum hinum Íslendingunum sem búa í Kristianstad. Þetta var frábær reynsla að flytja til nýs lands þar sem menningin er öðruvísi og maður þarf að læra nýjar áherslur sem er það sem bíða skal ef að maður ætlar að spila í atvinnumennsku. Ég var á hræðilegum samningi, þurfti að vinna með fótboltanum og læra að lifa á lágri innkomu sem var mjög hollt og lærdómsríkt, ég spilaði fullt af leikjum, lenti á bekknum, fékk að skipta um stöðu og allt mögulegt svo þessi tími var ótrúlega þroskandi fyrir mig bæði sem fótboltamanni og manneskju almennt."

„Fann mig í klassíska 'Arons Einars hlutverkinu' á miðjunni"
Bjarni gekk aftur í raðir KA fyrir tímabilið 2018 í Pepsi-deildinni. Það sumarið tók hann þátt í öllum leikjum liðsins. Hvers vegna kom Bjarni heim á þessum tímapunkti, rann samningurinn út hjá Kristianstad eða var önnur ástæða á bak við skiptin?

„Ástæðan fyrir því að ég kem heim var sú að Kristianstad fór í algjört rugl á þessum tímapunkti með peninga og annað. Ég var einnig búinn að vera íhuga það að flytja heim, ég var í námi frá Íslandi og mig langaði líka að prófa spila í Pepsi-deildinni því að ég vissi að ég gæti það. Þá var ég einnig búinn að spila í tvö ár í Svíþjóð og ekkert lið í deild fyrir ofan var búið að sýna neinn áhuga svo mér fannst ég smá fastur í þessari deild."

„Þegar ég sá hvað vandamálið var orðið stórt í Kristianstad og það voru þrjár vikur í mót á Íslandi ákvað ég að senda á Srdjan Tufegdzic, þáveranda þjálfara KA, sem hafði sent mér nokkrum mánuðum áður að hann vildi fá mig heim, hvort KA hefði ennþá áhuga. Svarið við því var já og vegna fjárhagsvandræða Kristianstad fékk ég leyfi til að rifta samningnum og gekk þetta allt rosalega hratt fyrir sig og var ég fluttur til Íslands og búinn að skrifa undir hjá KA viku seinna."


Voru fleiri lið á Íslandi sem höfðu áhuga á Bjarna?

„Í rauninni kom ekkert annað félag á Íslandi til greina þar sem þau höfðu sennilega ekkert auga á mér meðan ég var þarna úti, nema KA sem er minn klúbbur."

Var Bjarni sáttur með eigin frammistöðu sumarið 2018?

„Ég er frekar sáttur með hana svona á heildina litið. Í byrjun var ég í smá basli með stöðugleikann en ég fékk líka einnig að skipta mikið um stöðu í fyrstu leikjunum. Eftir að Tufa setti mig djúpan á miðjuna og ég fékk traustið frá honum þar þá gekk mjög vel og ég fann mig í klassíska 'Arons Einars hlutverkinu' á miðjunni. Þetta var sumarið þar sem að ég sýndi loksins fólki á Íslandi hvað ég gat í rauninni og sprakk smá út, svo á heildina litið mjög sáttur með það sumar."
„Þetta var langmest þegar ég var í MA og eftir að þetta kom í Áramótaskaupinu"
Á þessum tímapunkti í viðtalinu er tímabilinu 2018 lokið og verður fjallað um árin 2019 og 2020 hjá Bjarna í seinni hluta viðtalsins sem birtur verður á morgun. Þessum fyrri hluta er þó ekki lokið því Bjarni var aðeins spurður út í sín svör í 'Hinni hliðinni' sem birt var í júlí sem og annað áhugavert sem fréttaritari fann við einfalda fréttaleit.

„Nota klárlega hvorugt af þessum nöfnum"
Í janúar rifjaði Fótbolti.net upp grein sem mbl.is birti árið 2013. Þar var Bjarna líkt við stórleikarann Ryan Gosling og er það ekki í eina skiptið sem Bjarni hefur verið borinn saman við leikarann. Í grein Fótbolti.net stendur:

„Á tíma sínum í Menntaskólanum á Akureyri ku Bjarni hafa verið kallaður Bjarni Gosling eða Ryan Duffield vegna líkinda sinna og leikarans."

Bjarni var í gríni spurður hvort hann notaði annað hvort nafnið og hvort þessi samanburður við leikarann hefði einskorðast við skólagönguna í MA eða hvort þetta hafi eitthvað haldið áfram.

„Þessi samanburður er eitthvað sem að ég hef aldrei sjálfur verið að upphefja mikið, svo [ég nota] klárlega hvorugt af þessum nöfnum. Þetta var langmest þegar ég var í MA og eftir að þetta kom í Áramótaskaupinu. Hins vegar allsstaðar þangað sem ég hef flutt hefur þetta alltaf komið upp og fólk sagt þetta við mig en ekki náð þessum furðulegu hæðum sem þetta gerði á Íslandi."

Svíarnir alltaf jafn hneykslaðir á Bjarna
Bjarni er sonur 400 leikja mannsins Antons Mark Duffield sem var þjálfari Bjarna á yngri árum. Hvað er það helsta sem Bjarni hefur lært af pabba sínum þegar kemur að fótbolta?

„Ég lærði bókstaflega að spila fótbolta af pabba, svo í raun allt. Það helsta svona fyrir utan grunnhluti myndi ég þó segja að ég lærði inn á skallaeinvígi af honum og hvernig eigi að fara upp í þau til að vinna."

Sér Bjarni sjálfan sig fyrir sér á stuttbuxum í miklum kulda eins og faðir hann er þekktur fyrir?

„Já 100%. Ég er oft í stuttbuxum hérna úti þegar Svíarnir eru að frjósa og þeir eru alltaf jafn hneykslaðir á mér."

Þekki fullt af toppfólki frá Ólafsfirði
Bjarni sagðist nokkuð öruggur með það í 'Hinni hliðinni' í júlí að hann myndi aldrei spila fyrir Leiftur á Ólafsfirði á ferlinum. Leiftur og KS eru sameinuð í KF í dag, Ólafsfjörður er næsti bær við Siglufjörð. Bjarni var spurður hvað honum finndist um Ólafsfjörð sem kaupstað.

„Það er ekki líflegasti bær sem ég hef komið í. Græðir mikið á því að vera sameinaður Siglufirði til að mynda Fjallabyggð. Það er sennilega það besta við Ólafsfjörð hvað hann er nálægt Siglufirði. Þetta er allt saman samt bara létt grín, þekki fullt af toppfólki frá Ólafsfirði og hef ekkert slæmt um hann að segja sem kaupstað."

Mun klárlega mála mikið í framtíðinni
Bjarni sagði þá frá því að hann hefði ekki verið sá öflugasti í myndmennt í grunnskóla en það hefði verið áður en hann gerðist málari. Var hann fljótur að læra á pensilinn?

„Heldur betur. Ég er búinn að vinna sem málari síðan ég var 14-15 ára, er í fyrsta skipti núna ekkert að mála og ég sakna þess mjög mikið. Klárlega eitthvað sem ég mun gera mikið af í framtíðinni," sagði Bjarni og þannig lýkur fyrri hluta viðtalsins.

Sjá einnig:
Hin hliðin - Bjarni Mark Duffield (IK Brage)
Athugasemdir
banner
banner