Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mán 10. ágúst 2020 10:27
Magnús Már Einarsson
KR gæti mætt Ferencvaros eða Djurgarden heima
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurvegarinn í leik Celtic og KR í 1. umferð Meistaradeildarinnar mætir annað hvort Ferencvaros eða Djurgarden í 2. umferðinni.

Ferencvaros er ríkjandi meistari í Ungverjalandi en Djurgarden í Svíþjóð.

Ekki er leikið heima og að heiman í Evrópukeppnum að þessu sinni vegna kórónaveirunnar.

KR heimsækir Celtic í næstu viku en sigurvegarinn úr þeim leik á heimaleik í 2. umferðinni í þarnæstu viku.

Eins og staðan er í dag eru fótboltaleikir bannaðir á Íslandi og því geta íslensk félög ekki spilað heimaleiki meðan staðan er óbreytt.

Sjá einnig:
„Vona að heilbrigðisráðherra átti sig á þessu og breyti þessu"
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner