Fotbolti.net
10.08.26 - 19:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mourinho hefur trú á Endrick

Mourinho hefur trú á Endrick
Canon

Mynd: EPA

Spænski miðillinn AS greinir frá því að brasilíski sóknarmaðurinn Endrick verði áfram hjá Real Madrid.

Endrick er tvítugur og gekk til liðs við Real Madrid frá Palmeiras árið 2024. Hann hefur ekki fengið stórt hlutverk hjá liðinu og var á láni hjá Lyon á síðustu leiktíð þar sem hann kom að 16 mörkum í 21 leik seinni hluta tímabilsins.
Roma og Aston Villa hafa sýnt honum áhuga í sumar en AS segir að spænska félagið ætli að treysta á hann og Jose Mourinho sér hann fyrir sér í lykilhlutverki.

Endrick spilaði 37 leiki á sínu fyrsta tímabili með Real Madrid og skoraði sjö mörk. Hann kom við sögu í þremur leikjum á síðustu leiktíð áður en hann hélt til Frakklands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.