Fotbolti.net
10.08.26 - 11:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Stefan Ljubicic beint af Samsung á bráðamóttöku - Fjögur spor saumuð

Úr leiknum í gær.

Úr leiknum í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Stefan Alexander Ljubicic, framherji Keflavíkur, meiddist snemma leiks gegn Stjörnunni í gær. Hann meiddist strax á þriðju mínútu, boltinn kom á lofti eftir innkast og Stefan sendi hann áfram á lofti. Jóhann Árni Gunnarsson, leikmaður Stjörnunnar, reyndi að komast fyrir en með þeim afleiðingum að hann fór í löppina á Stefani. Brot var dæmt en Jóhann Árni slapp án þess að fá spjald.

Stefan lá eftir, fékk aðhlynningu og beit svo á jaxlinn og harkaði áfram þar til á 59. mínútu þegar hann varð að fara af velli.

Stefan fór í kjölfarið beint af Samsungvellinum og á bráðamóttökuna, þar var gert að skurðinum og fjögur spor saumuð.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 0 Keflavík
„Ég er bara fínn, en er verkaður. Frekar djúpur skurður sem ég fékk. Eftir að ég fór út af fór ég á bráðamóttökuna og þar þurfti að sauma fjögur spor."

„Það er auðvitað planið að ná leiknum gegn Þór á laugardag, en við sjáum til hvernig sárið nær að gróa. Þetta er á versta stað,"
segir Stefan sem hefur átt gott tímabil í Bestu deildinni; skorað átta mörk og lagt upp eitt.

Mynd af fætinum á Stefani má sjá hér að neðan.

Keflavík verður án Alpha Conteh gegn Þór þar sem hann fékk að líta rauða spjaldið í gær en þeir Marin Brigic og Eiður Orri Ragnarsson snúa til baka úr leikbanni.
Hefur átt gott tímabil.

Hefur átt gott tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.18+4245
2Fram17+1437
3KR17+2236
4Breiðablik18+629
5Valur18-522
6ÍA18-622
7Keflavík18-622
8Stjarnan18-1021
9ÍBV18-917
10FH18-1017
11KA18-1215
12Þór18-2615
Stefan Ljubicic beint af Samsung á bráðamóttöku - Fjögur spor saumuð
Canon

Mynd: Kristján Óli Sigurðsson/Twitter

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.