10.08.26 - 11:33
Kári Snorrason
Djuric á förum frá KA? - Mögulegir áfangastaðir

Mögulega á förum frá KA.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Samningsbundinn KA út tímabilið 2028.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lagt upp þrjú mörk í deildinni.

Danijel Dejan Djuric gæti verið á förum frá KA fyrir gluggalok. Samkvæmt heimildum hefur KA fengið fyrirspurnir um Danijel en það hefur ekki fengist staðfest þar sem forsvarsmenn KA hafa ekki svarað símtölum Fótbolta.net.
Danijel er 23 ára sóknarsinnaður miðjumaður sem KA keypti dýrum dómi frá króatíska félaginu NK Istra fyrir tímabil.
Innkoma hans í liðið hefur þó verið undir væntingum en hann hefur spilað 18 deildarleiki án þess að skora en lagt upp þrjú mörk.

TENGT EFNI
Stutt í gluggalok - Hvað eiga liðin í Bestu að gera?
Þrjú lið í umræðunni
Möguleg lið sem hafa verið nefnd og orðuð við Danijel er Valur, Breiðablik og ÍA.
Valsmenn hafa verið mest í umræðunni um Djuric. Tryggvi Hrafn Haraldsson er á förum frá Val eftir tímabil og er það stórt skarð að fylla. ÍA hefur þá sömuleiðis verið nefnt en þar vantar ekki úrvalið af sóknarmönnum.
Þá var Breiðablik sterklega orðað við Danijel áður en hann gekk í raðir KA. Hann gæti leyst Kristinn Steindórsson af hólmi sem verður samningslaus eftir tímabil. Danijel er uppalinn í Breiðabliki og þekkir liðið vel.
Víkingur er annað lið sem Djuric þekkir vel en hann lék með Víkingum frá 2022 til 2025. Meiðsli hafa herjað á herbúðir Víkings og gætu þeir því haft augastað á Danijel.
Ánægður í KA og að vinna í sínum málum
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gaf þjálfarinn lítið fyrir þær sögusagnir um að Danijel vildi fara í viðtali við Fótbolta.net í gær.
„Að mér vitandi er hann bara ánægður í herbúðum KA. Hann hefur verið að vinna í sínum málum og við tölum mikið saman. Og hann hefur alltaf verið kurteis og ekkert vesen, þannig að nei, hann hefur ekki sagt eitt neikvætt orð við mig allavega.
Fólk talar mikið um hann, ég er með 25 leikmenn í hópnum. Ég hef allavega ekki séð nein þess merki (að hann vilji fara) og ég veit að margt sem er í gangi er bara eitthvað bull sem að fólk er að segja,“ sagði Haddi í viðtali eftir leik í gær.