10.08.26 - 10:46
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Styrmir byrjað sex leiki í röð - „Einn af mörgum efnilegum strákum"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Styrmir Jóhann Ellertsson er Skagamaður, nýorðinn 18 ára, sem hefur byrjað síðustu sex leiki ÍA í Bestu deildinni. Hann er fjölhæfur leikmaður sem byrjaði sem hægri bakvörður gegn Þór í gær en færði sig inn á miðjuna þegar Guðmundur Þórarinsson fór meiddur af velli snemma leiks.
Áður hafði Styrmir komið inn á í tveimur leikjum í Bestu snemma móts og spilaði gegn Grindavík í bikarnum.
Hann átti góðan leik inn á miðjunni í gær og var Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, spurður út í unglinglandsliðsmanninn í viðtali eftir leik.

Lestu um leikinn: ÍA 2 - 0 Þór
„Styrmir er búinn að vera mjög flottur, hann er búinn að leysa bakvarðarstöðuna vel. Hann getur spilað djúpur á miðjunni en er í rauninni hafsent. Hann er einn af mörgum efnilegum strákum sem við erum með hérna, alveg helingur af strákum á leiðinni upp," sagði Lárus Orri.
Alls á Styrmir að baki 20 leiki fyrir yngri landsliðin.
Alls á Styrmir að baki 20 leiki fyrir yngri landsliðin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð