Fotbolti.net
10.08.26 - 16:10
Kári Snorrason

Hafa selt átján þúsund ársmiða eftir komu Salah

Vel tekið á móti Salah í Tyrklandi.

Vel tekið á móti Salah í Tyrklandi.

Canon

Mynd: EPA

Stuðningsmenn tyrkneska liðsins Trabzonspor eru spenntir fyrir komu Mohamed Salah í liðið.

Ertugrul Dogan, forseti liðsins, segir átján þúsund ársmiða hafa selst skömmu eftir komu Egyptans. Hann sagði ef 25 þúsund ársmiðar seljast þá sé búið að borga kostnaðinn við komu Salah.
Myndir: Salah fékk rosalegar móttökur í Istanbúl
TENGT EFNI

Myndir: Salah fékk rosalegar móttökur í Istanbúl

Salah skrifaði undir hjá tyrkneska liðinu í síðustu viku þar sem hann fékk höfðinglegar móttökur.

Egyptinn gerði samkomulag við Liverpool um að slíta samstarfinu ári áður en samningur hans við félagið átti að renna út og yfirgaf hann Bítlaborgina í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.