10.09.26 - 20:21
Brynjar Ingi Erluson
Coutinho og Neymar að sameinast á ný

Philippe Coutinho og Neymar munu spila saman hjá Santos

Mynd: EPA

Brasilíski sóknartengiliðurinn Philippe Coutinho er að snúa aftur á völlinn eftir rúmlega sex mánaða fjarveru frá fótbolta. Þetta segir brasilíski miðillinn Globo.
Coutinho er á leið til Santos og verður þar liðsfélagi Neymars. Hann fer í læknisskoðun á morgun og skrifar undir samning til áramóta.
Hann var síðast á mála hjá uppeldisfélagi sínu Vasco da Gama en yfirgaf það í febrúar vegna pressu frá stuðningsmönnum sem olli honum hugarangri og andlegri þreytu.
Coutinho átti sín bestu ár hjá Liverpool frá 2013 til 2018 áður en Barcelona keypti hann fyrir 142 milljónir punda. Hann náði sér ekki á strik hjá Börsungum en vann þó fjóra titla með liðinu og var lánaður til bæði Bayern München og Aston Villa áður en Villa keypti hann fyrir 17 milljónir punda árið 2022.
Eftir að Gerrard var rekinn frá Villa í október sama ár náði Coutinho sér ekki aftur á strik hjá félaginu. Hann var lánaður til Al Duhail og síðar Vasco da Gama, sem keypti hann á síðasta ári.
Nú liggur leiðin til Santos þar sem hann hittir fyrir Neymar, en þeir léku saman með yngri landsliðum Brasilíu og síðar A-landsliðinu. Coutinho á 68 A-landsleiki að baki og skoraði í þeim 21 mark.