Fotbolti.net
10.09.26 - 18:14
Brynjar Ingi Erluson

James á leið aftur til Kólumbíu

James á leið aftur til Kólumbíu
Canon

Mynd: EPA

James Rodriguez er á heimleið til Kólumbíu eftir farsælan feril erlendis. Hann mun semja við Atlético Nacional en þetta segja kólumbískir miðlar.
Hann hefur verið án félags frá því að hann yfirgaf bandaríska félagið Minnesota United í sumar.

Hann bar fyrirliðaband Kólumbíu á heimsmeistaramótinu í sumar en hefur ekkert flýtt sér að finna nýtt félag. Á dögunum var hann orðaður við Avellino í ítölsku B-deildinni en ekkert verður af þeim félagaskiptum.

Atlético Nacional hefur ýtt undir orðróminn síðustu klukkustundir með því að vísa ítrekað í töluna tíu. James hefur borið það treyjunúmer með landsliðinu og víðar á ferlinum og myndi væntanlega taka við því hjá félaginu.

James er 35 ára en hefur enn margt fram að færa eins og hann sýndi á HM í sumar. Hann hefur unnið 21 titil á ferlinum, hlotið fjölmörg einstaklingsverðlaun og er talinn einn besti leikmaður í sögu Kólumbíu.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.