Fotbolti.net
10.09.26 - 15:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Okafor mjög svekktur og gefur ekki kost á sér í landsliðið

Noah Okafor.

Noah Okafor.

Canon

Mynd: EPA

Noah Okafor, leikmaður Leeds, hefur gefið út að hann muni ekki spila fyrir svissneska landsliðið í fyrirsjáanlegri framtíð.

„Undir þessum kringustæðum þá get ég það hreinlega ekki lengur. Það gerðust hlutir sem snertu mig djúpt. Traustið var brotið," skrifar Okafor í færslu á samfélagsmiðlum.
Okafor er alls ekki sáttur með það hvernig komið var fram við hann í sumar og ætlar ekki að spila aftur fyrir landsliðið á meðan Murat Yakin stýrir liðinu.

Okafor kom einungis við sögu í einum leik á HM, spilaði 19 mínútur gegn Alsír. Hann segir þó að ástæðan sé ekki fáar mínútur heldur viðbrögðin sem hann fékk þegar hann fékk tækifærið.

„Loforð voru ekki efnd. Þegar ég fékk að spila gegn Alsír brugðust menn við minniháttar mistökum langt frá marki okkar á þann hátt að það særði mig djúpt. Í vikunum sem fylgdu hugsaði ég mikið og ákvað sjálfur að ég vildi ekki lengur spila fyrir landsliðið undir núverandi þjálfara," skrifar Okafor.
Murat Yakin.

Murat Yakin.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.