10.09.26 - 16:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fanney Lísa til Molde (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fanney Lísa og Óskar Smári að fara yfir stöðuna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan og norska félagið Molde FK hafa náð samkomulagi um kaup norska félagsins á Fanneyju Lísu Jóhannesdóttur frá Stjörnunni.
Fótbolti.net greindi frá því í vikunni að Fanney væri á leið í atvinnumennsku, fyrr í dag var svo sagt frá því að hún færi til Molde og talið að kaupverðið sé um sjö milljónir króna. Hún er 17 ára kantmaður og uppalin hjá Stjörnunni. Hún átti mjög gott tímabil í Bestu deildinni, var lykilmaður í Stjörnuliðinu, skoraði fimm mörk og lagði einnig upp fyrir samherja sína.
Hjá Molde hittir hún fyrir Sóleyju Eddu Ingadóttur, sem er árinu eldri en Fanney Lísa og sömuleiðis uppalin hjá Stjörnunni, og Amöndu Andradóttur. Fanney Lísa gæti spilað sinn fyrsta leik með Molde gegn Hönefoss á sunnudag. Molde situr í 7. sæti norsku deildarinnar.

TENGT EFNI
Fanney Lísa seld á sjö milljónir til Molde
„Það er mikið fagnaðarefni að Stjarnan sé að selja Fanney til Molde. Hún hefur gripið stórt tækifæri í sumar og spilað feikilega vel. Þetta er afrakstur öflugs yngri flokka starfs félagsins undanfarin ár og teljum við hana vera brautryðjanda fyrir aðrar stúlkur í félaginu. Við eigum eftir að sakna hennar gríðarlega, orkan og jákvæðnin sem hún gefur öllum í nærumhverfinu sínu er eftirtektarvert. Á sama tíma erum við öll alveg ákaflega stolt af henni og hlökkum til að sjá hana vaxa og dafna erlendis,” er haft eftir Óskari Smára Haraldssyni, þjálfara Stjörnunnar, í tilkynningu félagsins.
„Ég vil senda endalausar þakkir til allra hjá Stjörnunni. Þetta er heimilið mitt og ég mun sakna þess að mæta á Samsung með stelpunum, teyminu og Óskari. Ég er ótrúlega þakklát og hlakka til að sjá ykkur aftur! Verið góð við Rajko, takk fyrir mig og SKÍNI STJARNAN!” segir Fanney Lísa sjálf og á þá við Rajko Stanisic sem er markvarðaþjálfari Stjörnunnar.