Fotbolti.net
10.09.26 - 13:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Steypustöðin

Sterkust í 18. umferð - Elskar Ísland

Ashley Brown Orkus (Fram)

Ashley Brown Orkus.

Ashley Brown Orkus.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ashley Brown Orkus er sterkasti leikmaður 18. umferðar Bestu deildar kvenna. Hún átti stórleik þegar Fram vann 2-3 endurkomusigur gegn ÍBV í Vestmannaeyjum.

„Ég verð eiginlega að gefa Ashley þetta vegna þess að hún átti nokkrar frábærar vörslur í fyrri hálfleik sem hélt Fram inn í leiknum," skrifaði Tryggvi Guðmundsson í skýrslu sinni frá leiknum.
Sterkasta lið 18. umferðar - 17 ára sex sinnum í liðinu
TENGT EFNI

Sterkasta lið 18. umferðar - 17 ára sex sinnum í liðinu

Ashley varði fimm skot í leiknum og voru fjórar þeirra mjög fínar vörslur.

Ashley hefur í sumar fengið flest mörk á sig, en hún hefur að sama skapi fengið flest skot á sig og varið flest skot.

Hún kom fyrst til Íslands árið 2023 og gekk í raðir FHL en hún sneri aftur hingað til lands í fyrra og gekk þá í raðir Fram þar sem hún er núna á sínu öðru tímabili.

„Ég elska Ísland. Besta deildin er besta deildin," sagði Ashley við Fótbolta.net fyrr í sumar.

„Þetta er í þriðja skiptið sem ég kem hingað. Ég var með Fram síðasta einn og hálfan mánuðinn á síðasta tímabili og áður spilaði ég með FHL. Ég virðist bara alltaf enda aftur á Íslandi. Mér líður mjög vel hérna, fólkið er frábært og þegar sólin skín er veðrið líka frábært.“
Úr leik hjá Fram í sumar.

Úr leik hjá Fram í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Uppbótartíminn - Fáránleg spenna þegar deildin skiptist

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.