Fotbolti.net
10.09.26 - 14:45
Elvar Geir Magnússon

Frakkland vill Infantino burt og umbreytingu á FIFA

Gianni Infantino og Philippe Diallo.

Gianni Infantino og Philippe Diallo.

Canon

Mynd: EPA

„Stjórnunarhættir FIFA standast ekki þá staðla sem fótboltinn stendur fyrir," segir Philippe Diallo, forseti franska fótboltasambandsins, í yfirlýsingu.

Hann segir að endurskoða allt kerfi FIFA og vinna að umbótum, til þess þurfi að ræða við álfusambönd, aðildarlönd, leikmenn, stuðningsmenn og sérfræðinga í stjórnarháttum.

„Það þarf að vinna að víðtækri umbreytingu á stjórnarháttum FIFA, með það að markmiði að endurvekja traust, auka gagnsæi og tryggja sjálfstæði og góða hegðun stjórnenda FIFA."
Infantino sækist eftir endurkjöri
TENGT EFNI

Infantino sækist eftir endurkjöri

Franska fótboltasambandið hefur formlega dregið stuðning sinn til Gianni Infantino, sitjandi forseta FIFA, til baka.

Infantino hefur fengið gagnrýni úr öllum áttum eftir áætlanir um að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu og öðrum innviðum FIFA. Tillagan mætti gríðarlegri andstöðu um allan heim og var dregin til baka.

Infantino ætlar að sækjast eftir endurkjöri í mars á næsta ári en þetta staðfesti talsmaður sambandsins nýlega.
Frakkland vill Infantino burt og umbreytingu á FIFA
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.