10.09.26 - 10:15
Kári Snorrason
„Vonandi löng bók sem hefst með góðu opnunaratriði“
Auglýsing

Grindavík/Njarðvík á leið í bikarúrslit í fyrsta sinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hafa þegar tryggt sér áframhaldandi sæti í Bestu deildinni á næstu leiktíð.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

„Það er mikil spenna, búin að vera mjög skemmtileg vika hingað til og hún verður betri með deginum,“ sagði Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, á fjölmiðlafundi KSÍ í gærdag fyrir bikarúrslitaleik liðsins gegn Þrótti.
Grindavík/Njarðvík hefur unnið báða viðureignir liðanna gegn Þrótti í Bestu deildinni en Gylfi les lítið í það. „Það gefur okkur fullt en gefur þeim líka fullt. Ég held að allt svona fari út um gluggann í leikjum af svona stærðargráðu. Við vitum ef við eigum góðan leik þá getum við unnið þetta lið,“ segir Gylfi.

Sagan skrifuð á Suðurnesjum
Sameiginlegt lið Grindavíkur og Njarðvíkur var stofnað haustið 2024. Fyrsta heila tímabil félagsins fór liðið upp úr Lengjudeildinni og hefur liðið leikið í Bestu deildinni í sumar.
Liðið hefur þegar tryggt tilverurétt sinn áfram í deildinni á næstu leiktíð og er ásamt því á leið í bikarúrslit í fyrsta sinn.
„Þetta hefur verið ótrúleg saga (félagsins) hingað til. Hún er stutt en mjög góð. Vonandi verður þetta löng bók sem hefst með góðu opnunaratriði og verður geggjuð þar til hún endar eftir þúsund ár,“ segir Gylfi að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.