10.10.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ánægður að hafa yfirgefið Aston Villa - „Var ekki mikilvægur"


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Donyell Malen hefur spilað virkilega vel með Roma á þessari leiktíð. Hann er mjög ánægður með þá ákvörðun að fara til félagsins frá Aston Villa.
Malen gekk til liðs við Roma í janúar á láni en félagið festi kaup á honum í sumar. Hann hefur skorað sex mörk i fimm leikjum í ítölsku deildinni á þessu tímabili.
Malen gekk til liðs við Roma í janúar á láni en félagið festi kaup á honum í sumar. Hann hefur skorað sex mörk i fimm leikjum í ítölsku deildinni á þessu tímabili.
„Þetta var mín ákvörðun. Ég vildi spila og vera hluti af liði þar sem ég gat spilað hverja einustu helgi og verið í mikilvægu hlutverki. Mér fannst ég ekki vera mikilvægur þá svo þetta var besti möguleikinn," sagði Malen.
„Í dag líður mér eins og ég sé að réttum stað með rétta fólkinu. Þjálfarinn og liðsfélagarnir sýna mér mikið traust og það hjálpar mér að verða sá leikmaður sem mig dreymdi alltaf um að verða."
„Í dag líður mér eins og ég sé að réttum stað með rétta fólkinu. Þjálfarinn og liðsfélagarnir sýna mér mikið traust og það hjálpar mér að verða sá leikmaður sem mig dreymdi alltaf um að verða."
