Fotbolti.net
09.10.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Isak og Gakpo ekki með Liverpool - Iraola spurður út í City-málið

Andoni Iraola.

Andoni Iraola.

Canon

Mynd: EPA

Alexander Isak og Cody Gakpo verða ekki með Liverpool í stórleiknum gegn Manchester City á Anfield á sunnudaginn. Andoni Iraola, stjóri Liverpool, staðfesti þetta á fréttamannafundi.

Isak meiddist á læri í landsleik með Svíþjóð og Gakpo fór af velli vegna ökklameiðsla í landsleik með Hollandi.

„Það er ekki útlit fyrir að þeir verði lengi frá en við munum skoða þetta dag frá degi. Það er allavega ljóst að þeir verða ekki klárir á sunnudag," segir Iraola.

Hugo Ekitike hefur verið lengi á meiðslalistanum og litið hefur verið á kantmanninn Gakpo sem varakost fyrir Isak í stöðu fremsta manns.
England um helgina - Fjandsamlegt andrúmsloft á Anfield og Tottenham á Old Trafford
TENGT EFNI

England um helgina - Fjandsamlegt andrúmsloft á Anfield og Tottenham á Old Trafford

Óvissan eitt það versta
Eins og við var búist þá fékk Iraola spurningu út í það að City var dæmt sekt um alvarleg fjárhagsbrot.

„Ég veit ekki mikið um þetta mál, ég hef ekki skoðað það gaumgæfilega svo það er ekki sanngjarnt að segja mína skoðun. Hún er ekki gild," segir Iraola.

„Ég tel að óvissan sé eitt það versta í þessu. Óvissan er ekki góð fyrir neinn sem tengist þessu. En þetta mál er í ferli og við verðum að sýna þolinmæði eins og allir aðrir og sjá hvað gerist að lokum."
Isak og Gakpo ekki með Liverpool - Iraola spurður út í City-málið
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.