09.10.26 - 13:30
Brynjar Ingi Erluson
„Ég er fótboltaþjálfari, ekki stjórnmálamaður“

Marco Rose

Mynd: EPA

Marco Rose

Mynd: EPA
Marco Rose, stjóri Bournemouth, vildi lítið tjá sig um mál ensku úrvalsdeildarinnar gegn Manchester City og sagðist vera fótboltaþjálfari, ekki stjórnmálamaður.

TENGT EFNI
England um helgina - Fjandsamlegt andrúmsloft á Anfield og Tottenham á Old Trafford
Flestir stjórar ensku úrvalsdeildarinnar hafa farið varlega í yfirlýsingar þegar þeir hafa verið spurðir út í niðurstöðuna í máli Man City.
Félagið var fundið sekt í nánast öllum ákæruliðum og gæti sætt þungri refsingu fyrir brot á fjárhagsreglum deildarinnar á níu ára tímabili.
Rose var meðal þeirra sem vildu lítið tjá sig og sagðist ekki hafa nægar upplýsingar til að leggja dóm á málið.
„Ég hef oft mætt Manchester City í Meistaradeildinni með fyrri félögum mínum. Það var alltaf frábært að fá að takast á við bestu leikmenn og lið heims.“
„Þannig upplifði ég það. Ég er ekki maður sem ásakar aðra án þess að hafa nægar upplýsingar. Auðvitað heyri ég og les það sem kemur fram en ég hef ekki öll gögnin.“
„Ég treysti þeim sem fara með málið og svo sjáum við hvað gerist. Ég er fótboltaþjálfari, ekki stjórnmálamaður. Ég elska að þjálfa og við það vil ég halda mig,“ sagði Rose.