09.10.26 - 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Reyndu ýmis brögð til að stoppa íslenska liðið
Skrifar frá Pula í Króatíu

Frá vellinum í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Króatar reyndu ýmis brögð til að stoppa okkur Íslendinga í kvöld, en það gekk ekki upp hjá þeim.
Leikurinn endaði með 0-4 sigri Íslands og eru stelpurnar okkar því komnar með annan fótinn og gott betur en það í næstu umferð umspilsins um sæti á HM.

TENGT EFNI
Las viðtölin og vissi þá hvað Króatar óttuðust
Leikurinn í kvöld fór fram í Pula í Króatíu, en völlurinn var ekkert frábær. Hann var ekki vökvaður fyrir leikinn en Króatar vildu ekki vökva hann.
„Þeir sögðu að það væri það mikill raki hérna að það þyrfti ekki. Það var aðallega bara það að völlurinn er ekki sérstakur, það var mesta vesenið," sagði Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, eftir leikinn.
„Við vissum að þær myndu reyna allt til að vinna. Þær neituðu að vökva völlinn fyrir leik, boltarnir voru flatir og völlurinn er bara lélegur," sagði Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði. „Þær reyndu að gera allt til þess að koma í veg fyrir að við gátum spilað eins og við vildum. Ég er ótrúlega stolt af liðinu."
Tröðkuðu á vítapunktinum
Ísland fékk víti í seinni hálfleik sem Glódís Perla skoraði úr, en vítið var dæmt eftir langa VAR-skoðun. Á meðan atvikið var skoðað þá reyndu leikmenn Króatíu að traðka á punktinum.
„Já, það virðist vera í tísku. Við erum alltaf að lenda í þessu á Ítalíu og ég er orðin vön þessu. Maður þarf að verja vítapunktinn með lífi sínu," sagði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir eftir leikinn og hló.