09.10.26 - 19:59
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Vonandi er mamma stolt af okkur"
Skrifar frá Pula í Króatíu
Auglýsing

Arna og Hlín Eiríksdætur.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Þetta var ótrúlega skemmtilegt," sagði Arna Eiríksdóttir eftir 4-0 sigur Íslands gegn Króatíu í umspilinu um sæti á HM í kvöld.
Arna og systir hennar, Hlín, byrjuðu báðar leikinn og skoruðu saman þrjú mörk; Arna gerði tvö og Hlín gerði eitt.

Lestu um leikinn: Króatía 0 - 4 Ísland
„Þetta var mjög gaman. Ég skil ekki alveg af hverju hún fékk fyrstu spurninguna í bæði þessu viðtali og hinu," sagði Hlín og hló. „Þetta var ógeðslega gaman og eitthvað sem ég hef beðið eftir að fá að gera. Við höfum aðeins spilað saman í landsliðinu. Það var gaman að spila heilan leik í okkar stöðum."
Arna skoraði sín fyrstu landsliðsmörk. „Það léttir aðeins á manni að ná marki svona snemma. Ég náði aðeins að setja axlirnar niður og anda eftir það. Þetta var ótrúlega dýrmætt."
Seinni leikurinn fer fram í Reykjavík í næstu viku. Þær eru spenntar að fara heim og spila fyrir framan þjóðina.
„Vonandi er mamma stolt af okkur," sagði Hlín og brosti.
Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.