Fotbolti.net
09.10.26 - 12:30
Brynjar Ingi Erluson

Glasner: Trúverðugleiki deildarinnar er í húfi

Oliver Glasner

Oliver Glasner

Canon

Mynd: EPA

„Bíðum eftir endanlegri niðurstöðu, en ég vona að málinu ljúki sem fyrst,“ sagði Oliver Glasner, stjóri Nottingham Forest, í samtali við Guardian í gær um mál ensku úrvalsdeildarinnar gegn Manchester City.
Stjóri Sunderland: Keppnin missir gildi sitt ef deildin tekur ekki hart á þessu
TENGT EFNI

Stjóri Sunderland: Keppnin missir gildi sitt ef deildin tekur ekki hart á þessu

Stjórar ensku úrvalsdeildarliðanna hafa verið spurðir út í niðurstöðuna í máli Man City, sem var fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum vegna brota á fjárhagsreglum deildarinnar á árunum 2009 til 2018.

Margir hafa farið varlega í yfirlýsingar og viljað lítið segja. Glasner vildi bíða eftir endanlegri niðurstöðu en sagði mikið í húfi og hvatti til þess að málinu yrði lokið sem fyrst.

„Við hjá Palace vissum ekki hvort við myndum spila í Evrópudeildinni eða Sambandsdeildinni. Okkur var sagt að við fengjum svar á fimmtudegi en svo varð það mánudagur. Þessu var sífellt frestað og við fengum ekki endanlega niðurstöðu fyrr en tíu dögum áður en Sambandsdeildin hófst. Þess vegna tel ég að það verði að klára þetta sem fyrst.“

„Þetta veldur ensku úrvalsdeildinni miklum skaða og umræðan er ekki bundin við England. Þetta er stórmál um allan heim, sérstaklega í Evrópu. Trúverðugleiki deildarinnar skiptir mestu máli því um leið og stuðningsmenn hætta að treysta henni hætta þeir að horfa,“
sagði Glasner.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.