Watford hefur byrjað tímabilið afar illa en stuðningsmenn félagsins fengu loksins tilefni til að fagna á föstudaginn.
Norwich fékk Watford í heimsókn síðastliðinn föstudag þar sem gestirnir í Watford unnu 0-2 sigur, þetta var fyrsti sigur liðsins á tímabilinu.
Það sem var einnig athyglisvert við sigurinn var sú staðreynd að af öllum liðum í fjórum efstu deildum Englands var Watford síðasta liðið til að vinna deildarleik á tímabilinu.
Þeir Gerard Deulofeu og Andre Gray skoruðu mörkin í sigrinum.
1 - Watford are the 91st and final team in the top four tiers of English football this season to win a league match. Overdue. pic.twitter.com/TJIh56Mc5y
— OptaJoe (@OptaJoe) November 8, 2019
Athugasemdir