Táningurinn Eduardo Camavinga segist stoltur af því að vera orðaður við Real Madrid en gefur lítið upp um möguleikana á því að hann gangi í raðir félagsins.
Þessi 18 ára miðjumaður hefur leikið afskaplega vel fyrir Rennes í frönsku deildinni og varð yngsti landsliðsmaður Frakka í yfir 100 ár þegar hann lék fyrir A-landsliðið í Þjóðadeildinni í október. Þá var hann 17 ára.

„Það er klárt að það er frábært þegar stórt félag hefur áhuga. En ég er jarðbundinn, ég er hjá Rennes. Sjáum hvað gerist eftir tímabilið. Þá munum við setjast niður og ræða kosti og galla," segir Camavinga.
Camavinga fæddist í Angóla en hefur búið í Frakklandi frá tveggja ára aldri verið hjá Rennes síðan hann var ellefu ára. Hann er einn mest spennandi leikmaðurinn í franska fótboltanum.
Athugasemdir