18.09.26 - 20:54
Ívan Guðjón Baldursson
England: Brentford tók Chelsea í kennslustund

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brentford 3 - 0 Chelsea
1-0 Jaidon Anthony ('61 )
2-0 Igor Thiago ('83 )
3-0 Fabio Carvalho ('95)
1-0 Jaidon Anthony ('61 )
2-0 Igor Thiago ('83 )
3-0 Fabio Carvalho ('95)
Brentford mætti Chelsea í Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni og var staðan markalaus eftir jafnan fyrri hálfleik þar sem var lítið um færi.
Síðari hálfleikurinn hélt áfram í svipuðu fari nema að Brentford tókst að skapa sér talsvert hættulegri færi heldur en gestunum sem virkuðu afar hugmyndasnauðir í sóknarleiknum.
Jaidon Anthony gerði fyrsta markið á 61. mínútu þegar hann fékk boltann í algjöru dauðafæri eftir hornspyrnu og gat ekki annað en skallað hann í netið. Jannik Schuster gerði mjög vel að vinna fyrsta skallaboltann og koma boltanum fyrir markið, beint á kollinn á Anthony.
Igor Thiago tvöfaldaði svo forystuna undir lokin eftir að Kevin Schade slapp einn í gegn. Emiliano Martínez varði vel frá Schade en Igor Thiago hirti frákastið og skoraði.
Chelsea skapaði litla hættu í uppbótartíma og fékk mark í bakið þegar Fabio Carvalho kom inn af bekknum og skoraði af stuttu færi eftir lága og fasta fyrirgjöf frá Kevin Schade, svo lokatölur urðu 3-0 í Brentford.
Brentford hefur farið vel af stað á nýju deildartímabili og er enn taplaust eftir fimm umferðir, með níu stig. Chelsea er með sjö stig.