18.09.26 - 19:47
Ívan Guðjón Baldursson
Jón Óli um flóðljósin: Eins og maður sé í útlöndum
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Ólafur Daníelsson þjálfari ÍBV var hress eftir góðan sigur á heimavelli gegn nýkrýndum bikarmeisturum Þróttar R. í Bestu deildinni í dag.
Eyjakonur unnu 4-3 eftir skrautlegan fótboltaleik og sigla nokkuð lygnan sjó í 3. sæti Bestu deildarinnar, fjórum stigum fyrir ofan Stjörnuna.
Þriðja sætið gefur ekki neitt en Eyjakonur hafa átt magnaða endurkomu í efstu deild. ÍBV lék í Lengjudeildinni í fyrra og hafa nýliðarnir staðið sig frábærlega í Bestu. Jón Óli spáði því fyrir tímabilið að ÍBV myndi enda í topp 3 og gæti haft rétt fyrir sér.
„Við gerðum mjög góð mörk í dag og fengum að sama skapi á okkur hörmuleg mörk, en þetta er frábær sigur," sagði Jón Óli, sem svaraði svo að Allison Grace Lowrey hafi ekki verið í byrjunarliðinu vegna meiðsla. Hún hefur verið í miklum meiðslavandræðum í sumar en er þrátt fyrir það í baráttu um að vera markadrottning deildarinnar. Hún kom inn af bekknum í dag og skoraði það sem reyndist sigurmarkið.
„Við ákváðum að geyma hana í fyrri hálfleik og sem betur fer gerðum við það."
Tryggvi Guðmundsson og Jón Óli töluðu svo um nýju flóðljósin á Hásteinsvelli þar sem tilfinningin er svipuð þeirri og að fara á landsleik eða á stórleik erlendis.
„Nú getum við farið að bjóða liðum að koma hingað í æfingaferðir á veturna. Við eigum höll og gervigras með flóðljósum. Nú verður alltaf fært í Landeyjahöfn."

TENGT EFNI
Jóhann Kristinn: Bikarmeistaratitillinn gjaldfelldur duglega

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð