Fotbolti.net
18.09.26 - 20:32
Ívan Guðjón Baldursson

Tveir Íslendingaslagir - Mikilvægur sigur hjá NSÍ

Tveir Íslendingaslagir - Mikilvægur sigur hjá NSÍ
Canon

Mynd: Lyngby

Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í leikjum dagsins utan landsteinanna, þar sem Íslendingalið Lyngby steinlá gegn Silkeborg í efstu deild í Danmörku.
Daníel Freyr Kristjánsson og Ísak Snær Þorvaldsson voru í byrjunarliði Lyngby og kom Davíð Helgi Aronsson inn af bekknum í 0-4 tapi.

Staðan var orðin 0-2 þegar Lyngby missti mann af velli með rautt spjald og urðu lokatölur 0-4. Lyngby er í þriðja neðsta sæti deildarinnar með 7 stig eftir 9 umferðir, þremur stigum á eftir Silkeborg.

Í næstefstu deild voru Daníel Ingi Jóhannesson og Jakob Gunnar Sigurðsson í byrjunarliðunum er Kolding fékk Hilleröd í heimsókn og skildu liðin jöfn, 1-1. Liðin sitja bæði í neðri hluta deildarinnar eftir 9 umferðir.

Í efstu deild í Hollandi var Brynjólfur Andersen Willumsson í byrjunarliði Groningen sem vann þægilegan sigur á PEC Zwolle. Brynjólfur lék í 85 mínútur og er Groningen með 11 stig eftir 7 umferðir.

Í næstefstu deild var Helgi Fróði Ingason í byrjunarliði Helmond sem tapaði fyrir Den Bosch. Helmond er með 8 stig eftir 7 umferðir.

Í Færeyjum er NSÍ Runavík á toppnum eftir sigur á útivelli gegn B36. NSÍ er með þriggja stiga forystu á KÍ Klaksvík, með 48 stig eftir 23 umferðir. Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfar Runavík.

Í kvennaboltanum var annar Íslendingaslagur þegar Malmö og Djurgården áttust við í Svíþjóð. Hlín Eiríksdóttir var í byrjunarliðinu hjá Malmö sem vann þægilegan 3-0 sigur, á meðan María Catharína Ólafsdóttir Grós byrjaði í tapliði Djurgården.

Malmö siglir nokkuð lygnan sjó í þriðja sæti með 36 stig eftir 19 umferðir, en þetta var þriðja tapið í röð hjá Maríu og stöllum sem eru í harðri fallbaráttu með 18 stig.

Lyngby 0 - 4 Silkeborg

Kolding 1 - 1 Hilleröd

Groningen 3 - 0 Zwolle

Den Bosch 2 - 1 Helmond

B36 1 - 2 NSÍ

Kasimpasa 0 - 0 Konyaspor

Jong AZ 4 - 1 Volendam

Malmö 3 - 0 Djurgarden
Tveir Íslendingaslagir - Mikilvægur sigur hjá NSÍ
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Tveir Íslendingaslagir - Mikilvægur sigur hjá NSÍ
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tveir Íslendingaslagir - Mikilvægur sigur hjá NSÍ
Canon

Mynd: Malmö

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.